Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1150/2016

Reglugerð um stuðning í nautgriparækt. - Brottfallin

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um stuðningsgreiðslur í nautgriparækt, svo sem greiðslur út á greiðslumark, greiðslur fyrir innvegna mjólk, gripagreiðslur, greiðslur til framleiðenda nautakjöts og fjárfest­inga­stuðning, samkvæmt samningi um starfsskilyrði nautgriparæktar dags. 19. febrúar 2016.

2. gr.

Orðskýringar.

Í reglugerð þessari hafa eftirtalin orð þá merkingu sem hér segir:

Árskýr: Meðalfjöldi einstaklingsmerktra kúa á lögbýli yfir 12 mánaða tímabil samkvæmt skráningu í Huppu. Til að teljast með þurfa kýrnar að hafa borið kálfi að minnsta kosti annað hvert ár sam­kvæmt upplýsingum úr Huppu.

Bústofn: Miðlægur gagnagrunnur Matvælastofnunar til að halda utan um dýraeftirlit og forðagæslu í samræmi við lög um búfjárhald nr. 38/2013.

Gripagreiðsla: Fjárhagslegur stuðningur ríkisins til þeirra eigenda einstaklingsmerktra árskúa á lög­býlum sem uppfylla skilyrði þessarar reglugerðar.

Huppa: Tölvukerfi og gagnagrunnur í eigu Bændasamtaka Íslands, sem heldur utan um afurða­skýrslu­hald í nautgriparækt. Gögn sem verða til vegna skylduskráninga í samræmi við reglu­gerð þessa eru í umsjón og á ábyrgð Matvælastofnunar (MAST).

Holdakýr: Kýr af holdanautakyni sem alin er til kjötframleiðslu.

MARK: Miðlægur gagnagrunnur Matvælastofnunar þar sem varðveittar eru upplýsingar um einstak­lings­merkingar búfjár samkvæmt reglugerð nr. 916/2012 um merkingar búfjár.

Nýliði: Einstaklingur á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi, sem er að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hefur leigt búrekstur skemur en fimm ár og hefur ekki verið skráður handhafi beingreiðslna í sauðfé, mjólk eða garðyrkju síðastliðin 8 ár frá 1. janúar á umsóknarári.

Ónotað greiðslumark: Greiðslumark lögbýlis mælt í lítrum að frádreginni mjólkurframleiðslu búsins á verðlagsárinu.

3. gr.

Handhafar greiðslna.

Greiðslur samkvæmt reglugerð þessari fá þeir framleiðendur einir sem uppfylla eftirtalin skilyrði:

  1. eru skráðir eigendur eða leigjendur lögbýlis og
  2. stunda nautgriparækt og reka nautgripabú á lögbýlinu með virkt virðisaukaskattsnúmer og starfsemi þeirra fellur undir atvinnugreinanúmer 01 og 02 í atvinnuvegaflokkun Hagstofu Íslands, sbr. ÍSAT2008, þó ekki starfsemi í undirflokkum 01.61, 01.62, 01.63, 01.64, 01.70 og 02.40.

Hjón og einstaklingar í óvígðri sambúð, samkvæmt skráningu í þjóðskrá, sem standa saman að búrekstri geta óskað eftir því við Matvælastofnun að greiðslum samkvæmt reglugerð þessari sé skipt jafnt á milli aðila. Þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða með aðskilinn búrekstur getur hver og einn þeirra verið handhafi greiðslna.

Skilyrði fyrir greiðslum eru:

  a) þátttaka í afurðaskýrsluhaldi Bændasamtaka Íslands með fullnægjandi skilum í samræmi við 4. gr. og
  b) fullnægjandi skil á haustskýrslu í Bústofn skv. 10. gr. laga nr. 38/2013 um búfjárhald.

Hver framleiðandi getur ekki fengið framlög samkvæmt reglugerð þessari sem nema hærra hlutfalli en 0,7% af árlegum heildarframlögum samkvæmt samningi um starfsskilyrði nautgriparæktar.

Framleiðendur sem eru ekki skráðir þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi eða hafa fallið út úr því vegna skilyrða 4. gr. skulu sækja um þátttöku til Matvælastofnunar á þar til gerðu eyðublaði í rafrænu umsóknarkerfi Matvæla­stofnunar. Umsóknum skal skila eigi síðar en 10. desember fyrir næsta almanaksár sem stuðningsgreiðslur eiga að hefjast.

Ef framleiðandi uppfyllir ekki skilyrði fyrir stuðningsgreiðslum samkvæmt reglugerð þessari er Matvælastofnun heimilt að endurkrefja nýjan framleiðanda um allar ofgreiddar stuðningsgreiðslur fyrir búið ef skipt hefur verið um handhafa á árinu. Ef handhafaskipti eru ekki tilkynnt til Matvæla­stofnunar með réttum hætti áður en lokauppgjör fer fram þá ber Matvælastofnun ekki að endur­krefja fyrri handhafa um ofgreiddar stuðningsgreiðslur fyrir búið.

4. gr.

Afurðaskýrsluhald.

Til að þátttaka í afurðaskýrsluhaldi í nautgriparækt sé metin fullnægjandi skulu skilyrði sem til­greind eru í þessari grein vera uppfyllt, en miðað er við að unnt sé að rekja uppruna og afdrif allra gripa í hjörðinni á einfaldan og öruggan hátt, sem og safna áreiðanlegum upplýsingum um afurðir búsins.

Framleiðandi skal skila hjarðbók og heilsukorti og tryggja rétta framkvæmd á merkingum naut­gripa, í samræmi við reglugerð um merkingar búfjár nr. 916/2012 með síðari breytingum.

Allur nautgripabústofn framleiðanda skal skráður í Huppu. Framleiðandi ber ábyrgð á skráningu á afurðum sem gripir búsins gefa af sér.

Eftirfarandi skal skrá eða vera til staðar auk upplýsinga sem eru skráðar í hjarðbók búsins (lágmarkskröfur):

  1. Afdrif fangs hjá öllum kúm og kvígum.
  2. Burðardagur kúa og kvígna, fjöldi fæddra kálfa og afdrif þeirra.
  3. Fallþungi og gæðaflokkun allra sláturgripa, sem byggir á innlesnum sláturgögnum frá slátur­húsum.
  4. Ástæða afsetningar kúa og kvígna og að fylgt sé tímamörkum um skráningar sem tilgreind eru í reglugerð nr. 916/2012 um merkingar búfjár.
  5. Nyt allra mjólkandi kúa (mjólkurskýrsla) í hverjum mánuði fyrir 11. næsta mánaðar eftir mælingarmánuð.
  6. Mjólkurframleiðendur skulu taka kýrsýni úr öllum mjólkandi kúm tvisvar sinnum í hverjum ársfjórðungi.

Framleiðendur skulu staðfesta skýrsluhaldsupplýsingar í síðasta lagi 10. hvers mánaðar fyrir næst­liðinn mánuð og á það jafnt við um mjólkurframleiðendur sem og þá sem eingöngu stunda kjöt­framleiðslu.

Afurðastöðvum er skylt að skila gögnum til Matvælastofnunar um innlagaðar afurðir framleiðenda. Gögnin skulu innihalda upplýsingar um magn mjólkur, gæðaflokkun (tanksýni), sláturgögn sam­kvæmt reglugerð um merkingar búfjár nr. 916/2012 og aðrar þær upplýsingar sem Matvæla­stofnun telur nauðsynlegar til uppfylla skilyrði reglugerðar þessarar.

Matvælastofnun skal tryggður fullnægjandi aðgangur að Huppu og undirliggjandi gagnagrunni til að tryggja m.a. að skýrsluhaldskerfið uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til fullnægjandi afurða­skýrslu­halds.

5. gr.

Frestun eða niðurfelling stuðningsgreiðslna.

Matvælastofnun skal fresta stuðningsgreiðslum til framleiðanda ef hann hefur ekki staðið skil á afurðaskýrsluhaldi, sbr. 4. gr. reglugerðar þessarar, sem hér segir:

  1. Stuðningsgreiðslur frestast frá og með 1. maí fyrir skýrsluhaldsmánuðina janúar til mars.
  2. Stuðningsgreiðslur frestast frá og með 1. ágúst fyrir skýrsluhaldsmánuðina janúar til júní.
  3. Stuðningsgreiðslur frestast frá og með 1. nóvember fyrir skýrsluhaldsmánuðina janúar til september.
  4. Uppgjöri 1. febrúar árið eftir er frestað fyrir skýrsluhaldsmánuðina janúar til desember.

Þegar framleiðandi hefur staðið fullnægjandi skil á skýrsluhaldi fyrir skýrsluhaldsárið á undan skal Matvælastofnun greiða þær stuðningsgreiðslur sem frestað hefur verið til framleiðanda.

Matvælastofnun skal endurkrefja framleiðanda um stuðningsgreiðslur fyrir það tímabil sem hann þáði greiðslur fyrir ef hann stendur ekki skil á afurðaskýrsluhaldi.

Ef full skil á afurðaskýrsluhaldi hafa ekki verið gerð í Huppu fyrir 1. mars vegna skýrsluhaldsársins á undan er Matvælastofnun heimilt að fella niður stuðningsgreiðslur framleiðanda. Matvælastofnun skal greiða öðrum framleiðendum 1. apríl, sem stóðust skilyrði fyrir greiðslum, þá fjármuni sem þannig verða til í samræmi við hlut þeirra í greiðslum ársins á undan.

6. gr.

Opinbert eftirlit.

Ráðherra fer með yfirstjórn mála samkvæmt reglugerð þessari. Matvælastofnun fer með fram­kvæmd reglugerðarinnar og hefur eftirlit með að ákvæðum hennar sé fylgt.

7. gr.

Framkvæmdanefnd búvörusamninga.

Framkvæmdanefnd búvörusamninga er samráðsvettvangur samningsaðila samnings um starfs­skilyrði nautgriparæktar.

Framkvæmdanefnd búvörusamninga aflar upplýsinga um þróun framleiðslu og sölu á nautgripa­afurðum, afurðaverð, inn- og útflutning nautgripaafurða, afkomuþróun í nautgriparækt auk annarra upplýsinga sem hafa þýðingu fyrir framkvæmd samnings um starfsskilyrði nautgripa­ræktar.

Á grundvelli upplýsinga skv. 2. mgr. getur framkvæmdanefnd búvörusamninga ákveðið að færa fjármuni á milli einstakra verkefna sem falla undir samning um starfsskilyrði nautgriparæktar, sbr. töflu í viðauka I við samninginn. Heimilt er að færa árlega allt að 20% þeirrar fjárhæðar sem ætluð er til hvers verkefnis. Nefndin skal tilkynna Matvælastofnun um tilfærslur sem taka eiga gildi um áramót eigi síðar en 1. desember árið á undan.

Framkvæmdanefnd búvörusamninga tekur ákvörðun um skerðingu framlaga ef ekki verður jöfnuður milli innlausnar og sölu greiðslumarks skv. 9. gr. og 10. gr.

Framkvæmdanefnd búvörusamninga gerir tillögur um ráðstöfun framlaga sem ætluð eru til fram­leiðslu­jafnvægis skv. 6. gr. samnings um starfsskilyrði nautgriparæktar. Nefndinni er heimilt að ráðstafa slíkum fjármunum til eftirtalinna verkefna:

  1. Efling á markaðsfærslu nautgripaafurða.
  2. Sérstakar uppbætur fyrir slátrun kálfa og kúa.
  3. Tilfærsla í aðra framleiðslu á kúabúum.
  4. Tímabundnar býlisgreiðslur óháðar framleiðslu.

Matvælastofnun skal ráðstafa framlögum samkvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar búvöru­samn­inga.

II. KAFLI

Greiðslumark.

8. gr.

Heildargreiðslumark og greiðslumark lögbýla.

Heildargreiðslumark til framleiðslu mjólkur verðlagsárið 2017 skal vera 144 milljónir lítra og skiptist í greiðslumark lögbýla. Greiðslumark lögbýla reiknast í lítrum mjólkur og skiptist hlutfallslega milli lögbýla á sama hátt og greiðslumark til framleiðslu mjólkur á framleiðsluárinu 1. janúar til 31. desember 2016.

Viðskipti með greiðslumark milli handhafa eru óheimil. Matvælastofnun er þó heimilt í eftirfarandi tilvikum að staðfesta aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur:

  1. Þegar um er að ræða tilfærslu greiðslumarks milli lögbýla í eigu sama aðila.
  2. Þegar aðilaskiptin að greiðslumarki fara fram milli aðila innan sama lögbýlis.
  3. Þegar um er að ræða sölu á greiðslumarki frá einu lögbýli til annars lögbýlis innan sömu jarðtorfu (tvíbýlis- eða margbýlisjarðar, sbr. ákvæði landskiptalaga nr. 46/1941), þótt skipt hafi verið með landskiptum að hluta til, enda sé salan til þess fallin að auðvelda kyn­slóða­skipti og er að öðru leyti hagfelld.

Beiðni um aðilaskipti samkvæmt b- og c-lið skal fylgja umsögn ráðunautar.

Eigendum og leigjendum lögbýlis þar sem greiðslumark er skráð er heimilt að stunda framleiðslu sína og rekstur í leiguaðstöðu utan lögbýlisins að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

  1. Greiðslumark handhafa sé bundið við framleiðsluaðstöðu á einni jörð.
  2. Þinglýstur leigusamningur um framleiðsluaðstöðu liggi fyrir.
  3. Ekki séu aðrir handhafar greiðslumarks mjólkur með aðstöðu á sömu jörð og viðkomandi framleiðsluaðstaða er staðsett á.

9. gr.

Innlausn greiðslumarks.

Matvælastofnun annast innlausn greiðslumarks. Handhafi greiðslumarks getur lagt fram beiðni um innlausn á ónotuðu greiðslumarki sínu á þar til gerðu eyðublaði sem Matvælastofnun útvegar. Með beiðni um innlausn á greiðslumarki skal fylgja staðfesting um eignarhald á lögbýli og samþykki ábúanda, sameigenda og veðhafa í lögbýlinu. Beiðni um innlausn er bindandi frá skiladegi beiðn­innar um innlausn. Við innlausn á greiðslumarki skal seljandi endurgreiða greiðslur vegna greiðslu­marks skv. 12. gr. vegna yfirstandandi framleiðsluárs sem svarar til þess magns sem selt er. Matvæla­stofnun skal draga fjárhæð þessara greiðslna frá innlausnarverði við frágang innlausnar og ráð­stafa til endurúthlutunar til beingreiðslna.

Innlausn greiðslumarks skal fara fram 1. mars, 1. maí, 1. september og 1. nóvember ár hvert. Framkvæmd innlausnar fer fram með eftirfarandi hætti:

Innlausnardagur: Matvælastofnun auglýsir innlausnarvirði eigi síðar en: Skilafrestur vegna beiðni um innlausn: Greiðslufrestur Matvælastofnunar:
1. mars 15. janúar 4. febrúar 15. mars
1. maí 15. janúar 4. apríl 15. maí
1. september 15. janúar 4. ágúst 15. september
1. nóvember 15. janúar 4. október 15. nóvember

Greiðslumark framleiðanda þar sem engin framleiðsla fer fram í a.m.k. heilt verðlagsár skal ríkið innleysa á fyrsta innlausnardegi hvers árs, án þess að bætur komi fyrir.

Fyrir innleyst greiðslumark greiðir ríkissjóður tvöfalt núvirt andvirði greiðslna út á greiðslumark út gildistíma samnings um starfsskilyrði nautgriparæktar dags. 19. febrúar 2016. Núvirt andvirði greiðslna skal reiknast miðað við stýrivexti Seðlabanka Íslands 1. janúar ár hvert og greiðslur frá þeim tíma. Innlausnarvirði greiðslumarks helst óbreytt frá auglýsingardegi innlausnarvirðis til 31. desember ár hvert.

10. gr.

Sala á innleystu greiðslumarki.

Matvælastofnun skal bjóða til sölu það greiðslumark, sem er innleyst, á því verði sem ríkið greiddi fyrir innlausn skv. 4. mgr. 9. gr. Það sem Matvælastofnun innleysti án þess að bætur komu fyrir skv. 3. mgr. 9. gr. skal boðið til sölu á innlausnarvirði skv. 4. mgr. 9. gr. og skal söluandvirði þess deilt niður á handhafa greiðslumarks sem greiðslur út á greiðslumark.

Framkvæmd vegna sölu á innleystu greiðslumarki fer fram með eftirfarandi hætti:

Kaupandi er skráður fyrir greiðslumarki frá: Kaupandi nýtir greiðslumark á kaupári frá og með: Innlausnarvirði skal auglýst eigi síðar en: Skilafrestur umsóknar um kaup á greiðslumarki: Greiðslufrestur vegna kaupa á greiðslumarki:
1. mars 1. janúar 15. janúar 4. febrúar 20. febrúar
1. maí 1. janúar 15. janúar 4. apríl 20. apríl
1. september 1. janúar 15. janúar 4. ágúst 20. ágúst
1. nóvember 1. janúar 15. janúar 4. október 20. október

Framleiðendur sem teljast nýliðar eða hafa framleitt a.m.k. 10% umfram greiðslumark á árunum 2013-2015 skulu hafa forgang að kaupum 50% þess greiðslumarks sem hefur verið innleyst. Það skiptist jafnt á milli forgangshópanna sem skiptist svo hlutfallslega í samræmi við þann lítrafjölda sem þeir óskuðu eftir að kaupa.

Það greiðslumark sem þá er eftir skal boðið öðrum kaupendum sem og kaupendum í 3. mgr., að frádregnu því magni sem þeir keyptu skv. 3. mgr., hlutfallslega í samræmi við þann lítrafjölda sem þeir óskuðu eftir að kaupa.

Seljist innleyst greiðslumark ekki á yfirstandandi verðlagsári, þannig að ekki verði jöfnuður á innlausn og sölu greiðslumarks við uppgjör innlausnarmarkaða, skal því mætt með skerðingu milli verkefna samkvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar búvörusamninga skv. 7. gr. Ef hins vegar er um umframeftirspurn að ræða skal innleystu greiðslumarki skipt milli kaupenda hlutfallslega í samræmi við þann lítrafjölda sem þeir óskuðu eftir.

Tilboð um kaup á greiðslumarki er bindandi frá skiladegi umsóknar um kaup á greiðslumarki.

11. gr.

Nýting greiðslumarks.

Afurðastöð skal greiða framleiðanda lágmarksverð fyrir mjólk sem miðast við 1. flokks mjólk með skilgreindu efnainnihaldi. Fyrir aðra mjólk sem ekki stenst kröfur sem 1. flokks mjólk greiðir afurðastöð verð allt niður að leyfilegum afföllum frá verði 1. flokks mjólkur.

Framleiðsla umfram greiðslumark skal fara á erlendan markað á ábyrgð hvers framleiðanda og viðkomandi afurðastöðvar. Framkvæmdanefnd búvörusamninga getur þó gefið skriflega heimild til sölu þessara vara innanlands ef heildarframleiðsla verður minni en sala og birgðastaða gefa tilefni til.

Öll mjólk sem seld er í afurðastöð frá viðkomandi lögbýli skal reiknast með í uppgjöri greiðslumarks fyrir lögbýlið.

Mjólk sem unnið er úr til sölu á sama lögbýli og framleiðsla fer fram telst til framleiðslu innan greiðslumarks.

Afurðastöðvar og aðrir sem hafa með vinnslu og sölu búvara að gera skulu láta Matvælastofnun í té upplýsingar um framleiðslu, sölu, birgðir og vinnslu.

12. gr.

Greiðsla út á greiðslumark.

Greiðsla út á greiðslumark er framlag ríkisins til framleiðenda mjólkur og greiðist mánaðarlega úr ríkissjóði til handhafa greiðslumarks, sbr. 55. gr. laga nr. 99/1993. Handhafi greiðslumarks fær 1. hvers mánaðar 1/12 hluta greiðslna út á greiðslumark, óháð framleiðslu, að því tilskildu að framleiðsla lögbýlisins sé a.m.k. 90% greiðslumarks á yfirstandandi verðlagsári.

13. gr.

Uppgjör greiðslna.

Sjái handhafi greiðslna út á greiðslumark fram á að nýting greiðslumarks gefi ekki rétt til 100% af greiðslum framleiðslutímabilsins, ber honum að tilkynna það Matvælastofnun, sem þá skal haga greiðslum í samræmi við áætlaða nýtingu.

Greiðslur vegna framleiðslu umfram greiðslumark skal vera með þeim hætti að greiðslur vegna ónotaðs greiðslumarks skulu ganga hlutfallslega til annarra greiðslumarkshafa. Skal fyrst greitt fyrir fyrsta prósentustig sem greiðslumarkshafi framleiðir umfram eigið greiðslumark og síðan annað prósentustig og svo áfram eftir því sem ónotað greiðslumark gefur tilefni til.

Afurðastöð skal senda Matvælastofnun tilkynningu um stöðvun mjólkurinnleggs, ef mjólkurinnlegg framleiðanda fellur niður í heilan mánuð eða lengri tíma.

14. gr.

Útreikningur á greiðslumarki lögbýla.

Matvælastofnun reiknar út greiðslumark til framleiðslu mjólkur, heldur skrá yfir greiðslumark lögbýla og rétt til greiðslu samkvæmt því og lætur afurðastöðvum og búnaðarsamböndum í té eintak af henni fyrir starfssvæði þeirra. Matvælastofnun aflar upplýsinga og annast útreikninga vegna framkvæmdar þessarar reglugerðar. Afurðastöðvum og framleiðendum er skylt að láta Matvælastofnun í té allar þær upplýsingar sem að gagni geta komið við störf Matvælastofnunar og þær geta veitt.

15. gr.

Tilkynningar um greiðslumark lögbýla.

Matvælastofnun skal tilkynna framleiðendum um greiðslumark lögbýla. Framleiðendur eiga þess kost að koma á framfæri athugasemdum og skulu þær berast Matvælastofnun innan 20 daga frá dagsetningu tilkynningar um greiðslumark, ella gildir það fyrir framleiðslutímabilið. Matvælastofnun endurskoðar útreikninga, sem athugasemdir eru gerðar við og tilkynnir framleiðanda niðurstöðu sína. Berist Matvælastofnun ekki athugasemdir við þá niðurstöðu innan 25 daga frá dagsetningu endurútreikningsins gildir hann fyrir hlutaðeigandi verðlagsár. Uni viðkomandi framleiðandi ekki þeirri niðurstöðu, hefur hann rétt til að skjóta ágreiningnum með rökstuddri kæru til ráðherra, sbr. 26. gr.

III. KAFLI

Innvegin mjólk.

16. gr.

Greiðslur út á innvegna mjólk.

Greiðslur á innvegna mjólk eru greiddar mánaðarlega á alla innvegna mjólk óháð greiðslumarki. Heildarupphæð árlegs stuðnings skiptist í 12 jafna hluta þannig að jafnhá upphæð er greidd í hverjum mánuði óháð framleiðslumagni. Upphæðin í hverjum mánuði deilist jafnt á alla innvegna lítra í þeim mánuði. Greiða skal 1. hvers mánaðar fyrir innlegg næstsíðasta mánaðar, í fyrsta sinn 1. mars 2017.

IV. KAFLI

Gripagreiðslur.

17. gr.

Fjárhæð til einstakra framleiðenda.

Hlutdeild hvers framleiðanda í heildarframlagi til gripagreiðslna á hverju verðlagsári fer eftir fjölda árskúa samkvæmt afurðaskýrsluhaldi hans. Við ákvörðun á fjölda árskúa skal fyrsta við­mið­unar­tímabilið vera 1. desember 2015 til 30. nóvember 2016. Síðan skal fjöldi árskúa sóttur mán­aðar­lega úr afurðaskýrsluhaldi og breytingar á gripagreiðslum taka gildi tveimur mánuðum eftir það.

Heildargripagreiðslur verða eins og sýnt er í töflu hér að neðan, og skiptast þær í tvo flokka, mjólkurkýr og holdakýr. Árlega verður greiðslum sem til ráðstöfunar eru í hvorum flokki deilt á allar árskýr í viðkomandi flokki.

Mjólkurkýr (árskýr) Hlutfall af óskertri greiðslu
1 - 50 100%
51 - 100 75%
101 - 140 50%
141 - 180 25%
> 180 0%

Gripagreiðslur skerðast ef fjöldi holdakúa framleiðanda á lögbýli er yfir þeim mörkum sem að neðan greinir, samkvæmt eftirfarandi töflu:

Holdakýr (árskýr) Hlutfall af óskertri greiðslu
1 - 200 100%
201 - 220 75%
221 - 240 50%
241 - 260 25%
> 260 0%

Ef heildarfjöldi árskúa á landinu er minni en sú viðmiðun sem stuðst var við í samningi skv. 1. gr., þ.e. 25.000 mjólkurkýr og 3.000 holdakýr, hækkar greiðsla ríkissjóðs á hverja árskú til samræmis.

18. gr.

Gjalddagar gripagreiðslna.

Gripagreiðsla samkvæmt 1. mgr. 17. gr. er greidd í upphafi hvers mánaðar.

V. KAFLI

Kynbótastarf.

19. gr.

Ráðstöfun greiðslna vegna kynbótastarfs.

Greiðslum vegna kynbótastarfs skal Matvælastofnun ráðstafa með eftirfarandi hætti:

  1. 85% árlegra framlaga skal ráðstafa til aðila sem reka starfsemi í nautgripasæðingum. Fram­lagið skal greitt með 12 jöfnum mánaðarlegum greiðslum og skiptist milli viðtakenda á grund­velli magns innveginnar mjólkur á starfssvæði viðtakenda í næstliðnum mánuði. Þannig er framlagi vegna janúar skipt á grundvelli framleiðslu í næstliðnum desember­mánuði.
  2. 15% árlegra framlaga skal ráðstafa til jöfnunar á sæðingakostnaði til aðila sem reka starf­semi í nautgripasæðingum. Framlagið skal greitt með 12 jöfnum mánaðarlegum greiðslum og skiptist milli aðila með eftirfarandi hætti:
    1. 65% fjárhæðarinnar skiptist samkvæmt fjölda stöðugilda frjótækna sem starfa fyrir hvern aðila.
    2. 20% fjárhæðarinnar skiptist samkvæmt heildarfjölda ekinna kílómetra pr. sæðingu á starfssvæði hvers aðila. Ekki er þó greitt fyrir fyrstu 20 kílómetra sem eknir eru vegna hverrar sæðingar.
    3. 10% fjárhæðarinnar skiptist samkvæmt fjölda sæðinga á starfssvæði hvers aðila.
    4. 5% fjárhæðarinnar renna til Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands til að standa straum af kostnaði við þjálfun frjótækna.

Heimilt er að ráðstafa allt að 3% árlegra framlaga til kynbótastarfs skv. samningi um starfsskilyrði nautgriparæktar til að styrkja mikilvæg sameiginleg verkefni í kynbótastarfinu, s.s. kvíguskoðun o.fl. Framkvæmdanefnd búvörusamninga tekur ákvörðun um nýtingu heimildarinnar og skal ákvörðun tekin fyrir lok janúar ár hvert vegna yfirstandandi árs.

VI. KAFLI

Nautakjötsframleiðsla.

20. gr.

Einangrunarstöð og sláturálag.

Matvælastofnun skal samkvæmt tillögu framkvæmdanefndar búvörusamninga skv. 7. gr. ráðstafa framlögum til stuðnings við framleiðslu nautakjöts til eftirtalinna verkefna:

  1. Einangrunarstöðvar vegna innflutnings á erfðaefni holdanautgripa.
  2. Sláturálag á nautakjöt sem uppfyllir eftirfarandi gæðakröfur:
    1. Lágmarksþyngd grips sé 250 kg.
    2. Nautakjöt falli ekki í EUROP gæðaflokk P og P-.
    3. Gripur sé yngri en 30 mánaða.

Fjárhæð sem ráðstafað er til að greiða sláturálag á nautakjöt skiptist jafnt á þá skrokka sem fullnægja gæðakröfum skv. 2. tl. 1. mgr. Matvælastofnun skal ráðstafa greiðslum til framleiðanda í fjórum jöfnum hlutum í maí, ágúst, nóvember ár hvert og febrúar árið á eftir og skipta þeir með sér greiðslum úr ¼ hluta heildarframlaga hvers árs. Miða skal við slátrun á tímabilinu 1. janúar til 31. desember ár hvert.

VII. KAFLI

Fjárfestingastuðningur.

21. gr.

Markmið.

Greidd eru framlög til fjárfestingastuðnings í nautgriparækt. Markmið stuðningsins er að hraða því að framleiðendur standist kröfur samkvæmt reglugerð um velferð nautgripa nr. 1065/2014.

22. gr.

Auglýsing og umsókn.

Matvælastofnun ráðstafar framlögum vegna fjárfestingastuðnings. Ár hvert auglýsir Matvælastofnun eftir umsækjendum um framlög til fjárfestingastuðnings. Umsókn skal fylgja vönduð framkvæmda- og kostnaðaráætlun sem Matvælastofnun telur fullnægjandi. Sé um byggingu að ræða skulu fylgja teikningar.

Framleiðandi í nautgriparækt sem uppfyllir skilyrði 3. gr. getur sótt um fjárfestingastuðning. Umsóknum skal skila inn í rafrænt umsóknarkerfi Matvælastofnunar, eigi síðar en 31. mars ár hvert vegna framkvæmda á árinu.

Í umsókn skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:

  1. Upplýsingar um nafn, kennitölu, og lögheimili framleiðanda sem sækir um stuðning.
  2. Upplýsingar um búsnúmer lögbýlis sem sótt er um fjárfestingastuðnings fyrir.
  3. Tegund fjárfestingar sem óskað er stuðnings við:
    1. Nýframkvæmdir.
    2. Endurbætur á eldri byggingum.
  4. Heildarkostnaður vegna fjárfestingar. Kostnaður við úttekt er styrkhæfur.
  5. Rökstuðningur fyrir framkvæmd og hvernig framkvæmdin uppfyllir skilyrði fyrir stuðningi skv. 23. gr.
  6. Upplýsingar um þegar greiddan fjárfestingastuðning vegna sömu fjárfestingar, ef við á.

Fylgiskjöl með umsókn:

  1. Framkvæmdaáætlun með verklýsingu og tímasettri verkáætlun.
  2. Sundurliðuð kostnaðaráætlun.
  3. Byggingarleyfi, ef við á.
  4. Leyfi þinglýstra eigenda jarðar fyrir framkvæmd.

23. gr.

Skilyrði stuðnings.

Fjárfestingastuðningur er veittur vegna framkvæmda sem stuðla að hagkvæmari búskaparháttum, bættum aðbúnaði nautgripa og aukinni umhverfisvernd.

Stuðningur er veittur vegna eftirfarandi framkvæmda:

  1. Nýframkvæmda.
  2. Endurbóta á eldri byggingum.

Umsækjendur skulu skila fullnægjandi umsókn innan tilskilins tímafrests, sbr. 22. gr. Matvæla­stofnun skal fyrir 15. maí ljúka yfirferð umsókna og leggja mat á hvort þær uppfylli skilyrði fyrir stuðn­­ingi. Matvælastofnun tilkynnir umsækjendum um niðurstöðu matsins.

24. gr.

Afgreiðsla og útreikningur fjárfestingastuðnings.

Matvælastofnun annast úthlutun fjárfestingastuðnings. Fjárfestingastuðningur fyrir hvern fram­leið­anda getur að hámarki numið 40% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna. Hver framleiðandi getur þó ekki fengið hærra framlag árlega en 10% af heildarframlögum stuðn­ings­ins samkvæmt fjárlögum.

Sé fyrirhugað að framkvæmdir sem sótt er um stuðning fyrir verði framkvæmdar á fleiri en einu ári skal umsækjandi gera grein fyrir áfangaskiptingu við framkvæmdirnar í heild sinni í verklýsingu, verk- og kostnaðaráætlun. Heimilt er að veita stuðning við sömu framkvæmdir til allt að þriggja ára. Framleiðandi sem fengið hefur hámarksfjárfestingastuðning þrjú ár í röð, sbr. ofangreint, getur ekki sótt um stuðning að nýju fyrr en liðin eru tvö ár frá síðustu styrkveitingu.

Við upphaf framkvæmdar sem telst styrkhæf greiðast 50% af samþykktri styrkupphæð og 50% í framhaldi af skilum á lokaskýrslu að teknu tilliti til skilyrða í 25. gr. Matvælastofnun er heimilt að óska eftir afriti af reikningum vegna framkvæmda sem nutu fjárfestingastuðnings.

Framlög skerðast hlutfallslega á allar samþykktarumsóknir ef fjármunir hrökkva ekki til.

25. gr.

Eftirlit og úttektir.

Matvælastofnun hefur eftirlit með því að stuðningur sem veittur hefur verið hafi verið notaður til þeirra fjárfestinga sem getið er um í umsókn skv. 22. gr.

Matvælastofnun getur framkvæmt úttekt á framkvæmd umsækjanda telji hún þess þörf, á kostnað umsækjanda. Ef Matvælastofnun telur að framkvæmdakostnaður eða einstaka kostnaðarliðir hafi farið fram úr því sem eðlilegt getur talist skal taka tillit til þess við útreikning á endanlegri styrk­upphæð. Matvælastofnun skal upplýsa umsækjanda um allar slíkar breytingar og gefa honum hæfilegan frest til andmæla.

Komi í ljós að stuðningur sem greiddur hefur verið hafi ekki verið nýttur til framkvæmda á fram­kvæmda­ári sem sótt var um stuðning fyrir eða vikið hafi verið frá upplýsingum samkvæmt umsókn, skal framleiðandi endurgreiða greiddan stuðning.

VIII. KAFLI

Gildistaka og fleira.

26. gr.

Kæruheimild.

Ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu á greiðslumarki lögbýla og um rétt til beinna greiðslna er heimilt að skjóta til úrskurðar ráðherra innan þriggja mánaða, sbr. VII. kafla stjórnsýslulaga. 

27. gr.

Endurgreiðsla ofgreiddra greiðslna.

Ef greiðslur samkvæmt reglugerð þessari hafa verið ofgreiddar ber handhafa greiðslna að endur­greiða ríkinu hið ofgreidda fé. Beri að endurgreiða greiðslur skal handhafi endurgreiða greiðslur með vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður og birtir skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá þeim tíma er greiðslan átti sér stað og þar til endur­greiðsla fer fram. Auk almennra vaxta skal handhafi greiða dráttarvexti skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001. Vextir skulu þó ekki greiddir ef endur­greiðsla fer fram innan 30 daga frá því að greiðsla var greidd út. 

28. gr.

Skerðing og niðurfelling greiðslna.

Matvælastofnun er heimilt að skerða eða fella niður stuðningsgreiðslur skv. 5. gr. og einnig ef fram­leiðandi í nautgriparækt gefur vísvitandi rangar upplýsingar eða brýtur á annan hátt skilyrði í reglu­gerð þessari.

29. gr.

Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breyt­ingum. Með mál út af brotum skal farið skv. lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

30. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast gildi frá og með 1. janúar 2017 og gildir til 31. desember 2017. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð nr. 1220/2015 um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og greiðslur til bænda verðlagsárið 2016, reglugerð nr. 567/2006 um gripagreiðslur á lögbýlum og reglugerð nr. 190/2011 um markaðsfyrirkomulag við aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur á lögbýlum, með síðari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir 5. mgr. 3. gr. skulu framleiðendur sem ekki eru skráðir þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi sækja um þátttöku til Matvælastofnunar á þar til gerðu eyðublaði í rafrænu umsóknarkerfi stofn­unar­innar. Umsóknum skal skila eigi síðar en 27. desember 2016 fyrir árið 2017.

Þrátt fyrir 30. gr. skal uppgjör vegna ársins 2016 fara fram í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 1220/2015 um greiðslumark mjólkur og lögbýlum og greiðslur til bænda verðlagsárið 2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. desember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Rebekka Hilmarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica