Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

431/2002

Reglugerð um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2002. - Brottfallin

1. gr.

Á fjárhæðir tekjutryggingar og tekjutryggingarauka skv. 17. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 9. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skal greiða uppbætur sem hér segir á árinu 2002:
a) Í júlí 2002 20% uppbót á þessar fjárhæðir vegna orlofsuppbótar.
b) Í desember 2002 30% uppbót á þessar fjárhæðir vegna desemberuppbótar.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr., sbr. 65. gr., laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 13. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglugerðir nr. 388/1997, nr. 341/1998, nr. 425/1999, nr. 438/2000 og nr. 466/2001.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 13. júní 2002.

Jón Kristjánsson.
Guðríður Þorsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica