Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

388/1997

Reglugerð um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 1997. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 1997.

1. gr.

Á fjárhæð tekjutryggingar skv. 17. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar og fjárhæðir heimilisuppbótar og sérstakrar heimilisuppbótar skv. 9. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð skal greiða uppbót sem hér segir á árinu 1997:

a)             Í júlí 1997 skal greiða 20% uppbót á þessar fjárhæðir vegna orlofsuppbótar.

b)            Í desember 1997 skal greiða 30% uppbót á þessar fjárhæðir vegna desemberuppbótar.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 65. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, sbr. 13. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð og öðlast þegar gildi.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 20. júní 1997.

Ingibjörg Pálmadóttir.

Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica