Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

341/1998

Reglugerð um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 1998. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 1998.

1. gr.

                Á fjárhæð tekjutryggingar skv. 17. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar og fjárhæðir heimilisuppbótar og sérstakrar heimilisuppbótar skv. 9. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð skal greiða uppbót sem hér segir á árinu 1998:

a)             Í júlí 1998 skal greiða 20% uppbót á þessar fjárhæðir vegna orlofsuppbótar.

b)            Í desember 1998 skal greiða 30% uppbót á þessar fjárhæðir vegna desemberuppbótar.

2. gr.

                Reglugerð þessi er sett samkvæmt 65. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, sbr. 13. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð og öðlast þegar gildi.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 10. júní 1998.

Ingibjörg Pálmadóttir.

Jón Sæmundur Sigurjónsson.

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica