Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

449/2003

Reglugerð um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2003. - Brottfallin

1. gr.

Á fjárhæðir tekjutryggingar og tekjutryggingarauka skv. 17. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 9. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skal greiða uppbætur sem hér segir á árinu 2003:
a) Í júlí 2003 20% uppbót á þessar fjárhæðir vegna orlofsuppbótar.
b) Í desember 2003 30% uppbót á þessar fjárhæðir vegna desemberuppbótar.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr., sbr. 65. gr., laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 13. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 431/2002.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. júní 2003.

Jón Kristjánsson.
Guðríður Þorsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica