Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

466/2001

Reglugerð um eingreiðslur uppbóta til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2001. - Brottfallin

466/2001

REGLUGERÐ
um eingreiðslur uppbóta til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2001.

1. gr.

Á fjárhæðir tekjutryggingar og tekjutryggingarauka skv. 17. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 9. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skal greiða uppbætur sem hér segir á árinu 2001:
a) Í júlí 2001 20% uppbót á þessar fjárhæðir vegna orlofsuppbótar.
b) Í desember 2001 30% uppbót á þessar fjárhæðir vegna desemberuppbótar.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr., sbr. 65. gr., laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 13. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 13. júní 2001.

Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica