Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

265/2013

Reglugerð um friðun veiðisvæða fyrir Suðurlandi. - Brottfallin

1. gr.

Allar veiðar með togvörpu og dragnót eru bannaðar innan þriggja mílna frá fjörumarki meginlandsins á svæði fyrir Suðurlandi, sem að austan markast af línu, sem dregin er réttvísandi suður frá Stokksnesvita og að vestan af línu, sem dregin er réttvísandi suður frá Reykjanesvita.

2. gr.

Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. eru dragnótaveiðar heimilaðar á eftirgreindum svæðum og tímum:

  1. Frá og með 15. september til og með 31. maí milli lína, sem dregnar eru réttvísandi suður frá Selvogsvita og Reykjanesvita.
  2. Frá og með 1. júní til og með 31. júlí milli 20°06'V og 19°48'V, sbr. þó reglugerð nr. 732, 13. desember 1997, um bann við veiðum milli lands og Vestmannaeyja.
  3. Frá og með 1. mars til og með 30. júní milli 18°18'6 V og 17°00'V.
  4. Frá og með 1. apríl til og með 31. maí, að línu í einnar sjómílu fjarlægð frá fjörumarki meginlandsins milli 16°34'V og 15°45'V.
  5. Frá og með 1. september til og með 31. mars milli 21°23´V og að austan af línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:
    1. 63°27,20´N - 020°14,50´V
    2. 63°32,80´N - 020°13,30´V
  6. Frá og með 1. september til og með 31. maí á svæði sem afmarkast af línu sem er dregin milli eftirgreindra punkta:
    1. 63°47,6 N - 21°23 V
    2. 63°49,6 N - 21°23 V
    3. 63°49,6 N - 21°25 V
    4. 63°50,3 N - 21°26,1 V
    5. 63°50,5 N - 21°27,2 V
    6. 63°50,1 N - 21°28,5 V
    7. 63°49,2 N - 21°29,7 V
    8. 63°48,8 N - 21°28,9 V
    9. 63°48,6 N - 21°28,8 V
    10. 63°49,4 N - 21°31,6 V
    11. 63°49,0 N - 21°33,6 V
    12. 63°48,0 N - 21°31,5 V
    13. 63°47,0 N - 21°34,6 V
    14. 63°46,6 N - 21°35,1 V

3. gr.

Allar veiðar með togvörpu og dragnót eru bannaðar umhverfis Vestmannaeyjar innan línu sem dregin er í þriggja sjómílna fjarlægð frá fjörumarki eftirgreindra eyja og skerja: Elliðaeyjar, Bjarnareyjar, Heimaeyjar, Suðureyjar, Helliseyjar, Súlnaskers, Geirfugla­skers, Geldungs, Álseyjar, Grasleysu, Þrídranga og Einidrangs. Að norðan markast svæðið af línu sem dregin er í þriggja sjómílna fjarlægð frá fjörumarki meginlandsins, sbr. reglugerð nr. 732/1997.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru veiðar með dragnót og fótreipisvörpu heimilaðar á eftirgreindum svæðum og tíma:

  1. Frá og með 21. febrúar til og með 15. maí á svæði vestan línu, sem dregin er í réttvísandi norður frá Heimaey, þannig að austurkant Ystakletts og Faxaskersvita beri saman og norðan og vestan línu, sem dregin er frá Heimaey um Grasleysu í Þrídranga, þaðan í Einidrang og síðan í réttvísandi suður.
  2. Frá og með 16. maí til og með 31. júlí á svæði, sem markast af línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:
    1. 63°22'N - 20°24'V
    2. 63°22'N - 20°30'V
    3. 63°26'N - 20°28'V
    4. 63°26'N - 20°22'V

4. gr.

Fótreipisvarpa, sbr. 2. mgr. 3. gr. er varpa sem búin er fótreipi gerðu úr vír eða keðju sem skífur, körtur úr gúmmíi eða gerviefni er þrætt upp á, enda sé heildarþvermálið ekki meira en 20 sm.

5. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 148/1998 um friðun veiðisvæða fyrir Suðurlandi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. mars 2013.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica