Umhverfisráðuneyti

218/2012

Reglugerð um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði. - Brottfallin

1. gr.

Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu, eftir því sem nánar er kveðið á um í 2. og 3. gr. Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi. Gistináttaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 2. gr.

2. gr.

Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði í tjaldi, fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíl:

  Kr.

1.

Almennt gjald

1.200

2.

13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum

   600

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls.

3. gr.

Gjald fyrir aðra þjónustu:

  Kr.

1.

Sturtugjald, eitt skipti

    400

2.

Rafmagn fyrir húsbíl, einn sólarhringur

    750

3.

Afnot af þvottavél, eitt skipti

    500

4.

Afnot af þurrkara, eitt skipti

    500

5.

Tjaldleiga, einn sólarhringur

 2.500

6.

Sértæk þjónusta við ferðamenn skv. beiðni, sem felur í sér sérstakt vinnuframlag af hálfu starfsmanna þjóðgarðsins og akstur

10.000/klst.

7.

Kynningarbæklingur

    150/stk.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði, nr. 428/2010, með síðari breytingum.

Umhverfisráðuneytinu, 16. febrúar 2012.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica