Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

960/2010

Reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. - Brottfallin

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Hlutverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Hlutverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum á grundvelli ákvæða laga, reglugerða og vinnureglna sem settar eru um starfsemi sjóðsins. Þá greiðir sjóðurinn framlög til samtaka sveitarfélaga, stofnana þeirra og annarra aðila í samræmi við ákvæði laga.

2. gr.

Yfirstjórn sjóðsins.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal vera í umsjá og vörslu innanríkisráðuneytisins sem annast daglegan rekstur og afgreiðslu á hans vegum, úthlutun og greiðslu framlaga og bókhald sjóðsins.

Innanríkisráðherra hefur á hendi yfirstjórn Jöfnunarsjóðs og tekur ákvarðanir um úthlutun framlaga úr sjóðnum, annarra en bundinna framlaga skv. 6. gr., að fengnum tillögum ráðgjafarnefndar skv. 3. gr.

Kostnaður af rekstri sjóðsins greiðist af tekjum hans.

Ársreikningar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skulu endurskoðaðir af Ríkisendurskoðun og birtir í B-deild Stjórnartíðinda.

3. gr.

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs.

Að afloknum sveitarstjórnarkosningum skipar innanríkisráðherra fimm manna ráðgjafarnefnd til fjögurra ára. Fjórir nefndarmenn skulu skipaðir samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga en einn nefndarmaður skal skipaður án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Nefndin skal gera tillögur til ráðherra um framlög úr sjóðnum, önnur en bundin framlög skv. 6. gr.

Kostnaður við störf ráðgjafarnefndar greiðist úr Jöfnunarsjóði.

II. KAFLI

Tekjur Jöfnunarsjóðs.

4. gr.

Tekjur.

Tekjur Jöfnunarsjóðs eru þessar:

  1. Framlag úr ríkissjóði er nemur 2,12% af innheimtum skatttekjum ríkissjóðs.
  2. Árlegt framlag úr ríkissjóði er nemur 0,264% af álagningarstofni útsvars næstliðins tekjuárs.
  3. Hlutdeild í útsvarstekjum sveitarfélaga af álagningarstofni útsvars ár hvert:
    1. er nemur 0,77% til jöfnunar vegna reksturs grunnskóla,
    2. er nemur 0,95% til jöfnunar vegna málefna fatlaðra.
  4. Vaxtatekjur.

III. KAFLI

Framlög úr Jöfnunarsjóði.

5. gr.

Tegundir framlaga.

Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga eru bundin framlög, sérstök framlög, jöfnunarframlög, jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla og jöfnunarframlög vegna málefna fatlaðra sbr. ákvæði þessa kafla.

6. gr.

Bundin framlög.

Bundnum framlögum skal úthlutað sem hér greinir, í samræmi við greiðsluáætlun sem liggja skal fyrir í byrjun hvers árs:

  1. Til Sambands íslenskra sveitarfélaga, 1,7% af tekjum sjóðsins skv. a-, b- og 1. tölulið c-liðar 4. gr. að frádregnum framlögum skv. d-lið 7. gr. Framlög skulu greidd mánaðarlega.
  2. Til landshlutasamtaka sveitarfélaga, 2% af tekjum sjóðsins, skv. a- og b-lið 4. gr. að frádregnum framlögum skv. d- og e-lið 7. gr. og skulu þau framlög skiptast jafnt milli allra landshlutasamtakanna. Framlög skulu greidd mánaðarlega.
  3. Til Innheimtustofnunar sveitarfélaga skv. 4. gr. laga nr. 54/1971, með síðari breytingum. Framlög skulu greidd á tveggja mánaða fresti eftir á.
  4. Til umsjónarnefndar eftirlauna skv. 22. gr. laga nr. 113/1994 með síðari breytingum, sbr. 16. gr. og II. kafla sömu laga. Framlög skulu greidd í desember ár hvert.
  5. Til húsafriðunarsjóðs skv. 16. gr. laga nr. 104/2001. Framlög skulu greidd fyrir 1. maí ár hvert.

Framangreindum aðilum, er njóta framlaga úr Jöfnunarsjóði, sbr. lið a-e, ber að skila endurskoðuðum ársreikningi ásamt ársskýrslu til sjóðsins.

7. gr.

Sérstök framlög.

Sérstökum framlögum skal úthlutað úr sjóðnum sem hér greinir:

  1. Til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga, á grundvelli reglna sem ráðherra setur, sbr. 98. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, og a-lið 11. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum.
  2. Til að greiða úr sérstökum fjárhagserfiðleikum sveitarfélaga, sbr. 75. gr. sveitar­stjórnar­laga, nr. 45/1998, í samræmi við tillögur eftirlitsnefndar með fjár­málum sveitarfélaga.
  3. Til greiðslu stofnkostnaðar við vatnsveitur á lögbýlum, sbr. reglugerð nr. 973/2000, allt að 25 millj. kr. á ári.
  4. Til jöfnunar á tekjutapi einstakra sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteigna­skatti í kjölfar breytingar á álagningarstofni mannvirkja, allt að 30% af tekjum sjóðsins skv. a-lið 4. gr., sbr. reglugerð nr. 80/2001, með síðari breytingum.
  5. Til ráðstöfunar til sveitarfélaga vegna húsaleigubóta, allt að 11,5% af tekjum sjóðsins, skv. a-lið 4. gr., sbr. reglugerð nr. 122/2003 með síðari breytingum.
  6. Til sérstakra verkefna sem geta haft mikla þýðingu fyrir sveitarfélög, sbr. 10. gr.

8. gr.

Jöfnunarframlög.

Jöfnunarframlög skiptast í tekjujöfnunarframlög og útgjaldajöfnunarframlög:

  1. Tekjujöfnunarframlögum skv. 12. gr. skal úthlutað til að jafna tekjur sveitarfélaga. Útreiknuð framlög skulu miðast við sambærileg sveitarfélög og fullnýtingu tekjustofna þeirra. Framlög skulu greidd sveitarfélögum að ¾ hlutum fyrir 1. nóvember ár hvert en endanlegt uppgjör fer fram fyrir árslok á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga, sbr. 1. mgr. 12. gr. Einungis kemur til úthlutunar og greiðslu framlags hafi sveitarfélag fullnýtt heimild sína til álagningar útsvars.
  2. Útgjaldajöfnunarframlögum skv. 13. gr. skal varið til að mæta mismunandi útgjaldaþörf sveitarfélaga á grundvelli stærðarhagkvæmni og tekna þeirra, að teknu tilliti til þeirra þátta sem áhrif hafa á útgjaldaþörf. Framlög skulu greidd sveitar­félögum mánaðarlega. Þó skal heimilt að halda eftir allt að 10% af áætluðum framlögum til að mæta því ef ráðstöfunarfé sjóðsins, sbr. 2. mgr., verður minna eða útgjöld meiri en áætlað var. Endanlegt uppgjör skal fara fram eigi síðar en í árslok á grundvelli upplýsinga um íbúafjölda sveitarfélaga 1. desember árið á undan og leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga

Til jöfnunarframlaga skal verja þeim tekjum Jöfnunarsjóðs skv. a- og b-lið 4. gr. sem eru umfram ráðstöfun skv. 6. og 7. gr.

9. gr.

Jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla.

Tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skv. 1. tölul. c-liðar 4. gr., að frádregnu framlagi til Sambands íslenskra sveitarfélaga skv. a-lið 6. gr. og hlutdeild í kostnaði skv. 3. mgr. 2. gr., skal varið til þess að jafna launakostnað sveitarfélaga af kennslu í grunnskólum og annan kostnað af flutningi grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga. Við úthlutun framlaga skal hafa hliðsjón af auknum útsvarstekjum einstakra sveitarfélaga vegna yfirfærslu grunnskólans en um úthlutun framlaga fer samkvæmt ákvæðum reglugerðar, nr. 351/2002 með síðari breytingum.

10. gr.

Jöfnunarframlög vegna málefna fatlaðra.

Tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, skv. 2. tölul. c-liðar 4. gr. að frádregnum kostnaði tengdum flutningi málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga og hlutdeild í kostnaði, skv. 3. mgr. 2. gr. að viðbættum beinum framlögum á fjárlögum, skal varið til jöfnunar vegna þjónustu við fatlaða með greiðslu framlaga til einstakra sveitarfélaga og þjónustusvæða. Við úthlutun framlaga skal hafa hliðsjón af auknum útsvarstekjum einstakra sveitarfélaga vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðra, en um úthlutun framlaga fer samkvæmt ákvæðum sérstakrar reglugerðar sem ráðherra setur á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 með síðari breytingum vegna yfirfærslunnar.

IV. KAFLI

Nánar um einstök framlög.

11. gr.

Framlög til sérstakra verkefna.

Heimilt er að greiða framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til verkefna á vegum sveitarfélaga eða samtaka þeirra sem hafa að mati ráðgjafarnefndar mikla þýðingu fyrir sveitarfélög og uppfylla annað hvort eftirfarandi markmiða:

  1. að stuðla að þróun til hagræðingar í rekstri og/eða þjónustu sveitarfélaga,
  2. að aðstoða sveitarfélög sem orðið hafa fyrir verulega íþyngjandi og ófyrirséðum útgjöldum vegna lögákveðinna verkefna eða af öðrum ástæðum sem ráðgjafarnefnd metur gildar.

Umsóknir skal senda Jöfnunarsjóði eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Ráðgjafarnefnd er heimilt að leita álits sérfræðinga á einstökum umsóknum. Við mat á umsóknum skal m.a. tekið tillit til notagildis verkefnanna í almannaþágu.

Þeir sem hljóta framlag samkvæmt þessari grein skulu skila skýrslu um framkvæmd verkefnis til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga eigi síðar en einu ári eftir að framlagi var úthlutað. Ef sótt er um áframhaldandi stuðning við verkefni, sem áður hefur hlotið framlag úr Jöfnunarsjóði, ber umsækjanda að láta fylgja umsókn áfangaskýrslu um stöðu verkefnisins.

Ráðgjafarnefnd getur sett nánari vinnureglur um meðferð umsókna.

12. gr.

Tekjujöfnunarframlög.

Ráðherra gerir árlega í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga skrá um álagðar skatttekjur sveitarfélaga á yfirstandandi reikningsári ásamt skrá um fullnýtingu tekjustofna, þ.e. útsvars, fasteignaskatts og framleiðslugjalds. Með útsvari er átt við álagt útsvar á yfirstandandi ári á tekjur fyrra árs. Við gerð skrár skv. 1. málsl. skal einnig taka tillit til jöfnunarframlaga sem sveitarfélög fá vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti, sbr. reglugerð nr. 80/2001, með síðari breytingum.

Á grundvelli skrár um fullnýtingu tekjustofna sveitarfélaga skal reikna út eftirtalin meðaltöl:

  1. á hvern íbúa í Reykjavík,
  2. á hvern íbúa í öllum sveitarfélögum með 11.000 íbúa og fleiri, öðrum en Reykjavík,
  3. á hvern íbúa í öllum sveitarfélögum með 300 - 10.999 íbúa,
  4. á hvern íbúa í öllum sveitarfélögum með færri en 300 íbúa.

Við útreikning meðaltals skv. b-, c- og d-lið skal sleppa tekjum sem einstök sveitarfélög hafa af álagningu fasteignaskatts og framleiðslugjaldi af virkjunum og stórfyrirtækjum, enda hafi þær tekjur veruleg áhrif á niðurstöðu innan viðkomandi flokks. Jafnframt skal við útreikning meðaltals skv. b-, c- og d-lið sleppa alveg einstaka sveitarfélögum þar sem tekjur eða íbúafjöldi hafa veruleg áhrif á niðurstöðu innan viðkomandi flokks.

Ef meðaltal á hvern íbúa í sveitarfélagi miðað við fullnýtingu tekjustofna er lægra en 97% af meðaltali á hvern íbúa í öllum sveitarfélögum í viðkomandi flokki skv. 2. mgr. skal greiða sveitarfélagi tekjujöfnunarframlag sem nemur allt að mismuninum.

Heimilt er að miða tekjujöfnunarframlög til sveitarfélaga með færri en 300 íbúa við c-lið 2. mgr. enda búi a.m.k. 2/3 hlutar íbúa í þéttbýli.

Heimilt er að skerða tekjujöfnunarframlag til sveitarfélags ef það vanrækir að viðhalda eðlilegu fasteignamati í sveitarfélaginu.

13. gr.

Útgjaldajöfnunarframlög.

Í desember skal liggja fyrir áætlun um úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga á næsta ári eftir skiptingu þeirra í A- og B-hluta. Áætlunin skal byggð á upplýsingum um tekjur sjóðsins á fjárlögum ársins og íbúaskrá sveitarfélaganna í október árið á undan ásamt öðrum þeim gögnum sem byggt er á við útreikning framlaganna.

Útgjaldajöfnunarframlög á grundvelli A- og B-hluta skal skerða hjá þeim sveitarfélögum sem hafa hlutfallslega háar tekjur á íbúa miðað við önnur sveitarfélög. Skerðingin hefst þegar meðaltekjur á íbúa, miðað við fullnýtingu tekjustofna sveitarfélags, eru 4% yfir meðaltali í hverjum viðmiðunarflokki skv. 2. mgr. 12. gr. Framlög falla niður þegar meðaltekjur á íbúa eru 30% yfir meðaltali. Skerðing innan þessara marka skal vera hlutfallsleg.

A-hluti

Hlutfallsleg skipting þess fjár sem er til ráðstöfunar samkvæmt A-hluta þessarar greinar ræðst af eftirfarandi:

Viðmið:

Hlutfall af heild:

1.  

Fjöldi íbúa á aldrinum 0-5 ára

31,1%     

2.  

Fjöldi íbúa á aldrinum 6-15 ára

22,4%     

3.  

Fjöldi íbúa á aldrinum 16-66 ára

7,5%     

4.  

Fjöldi íbúa á aldrinum 67 ára og eldri

9,6%     

5.  

Fjöldi íbúa á aldrinum 81 árs og eldri

6,2%     

6.  

Fjöldi innflytjenda á aldrinum 0-5 ára

2,6%     

Samtals íbúatengd framlög:

79,4%     


7.  

Fjarlægðir innan sveitarfélaga

11,2%     

8.  

Fjöldi þéttbýlisstaða umfram einn

3,7%     

9.  

Fækkun íbúa

2,5%     

10.  

Snjómokstur í þéttbýli

3,2%     

Alls:

100%     

Skýringar á útreikningi framlaga:

a. Íbúatengd framlög: Við útreikning íbúatengdra framlaga, sbr. 1.-6. tölul., skal byggja á upplýsingum frá Hagstofu Íslands um íbúafjölda í sveitarfélagi í viðkomandi aldurshópi. Framlag til hvers sveitarfélags tekur mið af hlutfallslegum íbúafjölda þess af heildaríbúafjölda á landinu öllu innan hvers viðmiðunarflokks. Þegar lokið er útreikningi íbúatengdra framlaga samkvæmt framangreindu skal umreikna þau með tilliti til stærðar hvers sveitarfélags, á grundvelli eftirfarandi stuðla sem byggjast á íbúafjölda sveitarfélags. Stuðlarnir eru fundnir þannig (sjá fylgiskjal 1):

Sveitarfélög með færri en 2.400 íbúa fá stuðulinn 1,0.
Sveitarfélög með 2.400-9.000 íbúa fá stuðul hlutfallslega á bilinu 1,0-0,215.
Sveitarfélög með 9.000-15.000 íbúa fá stuðulinn 0,215.
Sveitarfélög með 15.000-22.000 íbúa fá stuðul hlutfallslega á bilinu 0,215-0.
Sveitarfélög með fleiri en 22.000 íbúa fá stuðulinn 0.

b. Fjarlægðir: Við mat á útgjaldaþörf sveitarfélags skal taka tillit til fjarlægða innan sveitarfélags og hlutfalls íbúa í þéttbýli og dreifbýli. Fjarlægðir í sveitarfélögum skulu mældar á eftirfarandi hátt:

  1. Settir skulu punktar á ystu mörk sveitarfélags, þó aldrei lengra en á ystu mörk byggðar, í norðri, austri, suðri og vestri, eða annars staðar eftir landfræðilegum aðstæðum í sveitarfélagi.
  2. Vegalengdir skulu mældar frá þessum punktum miðað við stystu akstursleið að stærsta þéttbýliskjarna sveitarfélags eða miðpunkti þess ef enginn þéttbýliskjarni er í sveitarfélaginu.
  3. Þannig mældar vegalengdir skal síðan margfalda með stuðlum sem eru mismunandi eftir sveitarfélögum og miðast við hlutfall íbúa í þéttbýli og dreifbýli. Heimilt er að líta eingöngu á stærsta þéttbýlisstaðinn eða -staðina sem þéttbýli. Stuðlana skal reikna þannig:

i)

Sveitarfélög með hlutfall þéttbýlis frá 0 til 50 fá stuðul hlutfallslega á bilinu 0,1-1,0.

ii)

Sveitarfélög með hlutfall þéttbýlis frá 50 til 90 fá stuðulinn 1,0.

iii)

Sveitarfélög með hlutfall þéttbýlis frá 90 til 100 fá stuðul hlutfallslega á bilinu 1,0-0,0.



c. Fjöldi þéttbýlisstaða umfram einn: Við útreikning skal taka tillit til sérstakrar útgjaldaþarfar sveitarfélaga sem halda þurfa úti þjónustu á fleiri en einum þéttbýlisstað innan sveitarfélagsins. Útreikningum skal þannig hagað að fjármagn skiptist hlutfallslega á eftirfarandi hátt:

  1. 60% skal skipta á grundvelli íbúafjölda í þéttbýlisstöðum umfram einn.
  2. 40% skal skipta eftir fjölda þéttbýlisstaða umfram einn í hverju sveitarfélagi.

d. Fækkun íbúa: Ef íbúum sveitarfélags hefur á síðustu þremur árum fækkað samtals um a.m.k. 15 íbúa og ársfækkun íbúa á sama árabili er að meðaltali meiri en 1% af íbúafjölda sveitarfélagsins, skal reikna út framlag vegna fólksfækkunar. Framlag byggist á fækkun íbúa samtals umfram 15 síðustu þrjú árin.

f. Snjómokstur í þéttbýli: Framlögum skal úthlutað til sveitarfélaga á snjóþyngstu svæðum landsins vegna útgjalda af snjómokstri gatna í þéttbýli sveitarfélags á grundvelli vinnureglna sem ráðherra setur skv. tillögum ráðgjafarnefndar og að fenginni umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

B.

Fjármagn sem til ráðstöfunar er samkvæmt B-hluta þessarar greinar rennur til framlaga vegna skólaaksturs úr dreifbýli:

Skólaakstur úr dreifbýli: Útreikningur framlaga byggist á upplýsingum frá sveitarfélögum um akstursleiðir úr dreifbýli sveitarfélags og fjölda grunnskólabarna á hverri leið sem eiga heimili lengra en 3,0 km frá skóla, miðað við 1. október ár hvert. Framlög taka mið af lengstu akstursvegalengd innan hverrar leiðar frá heimili að skóla, fjölda barna, stærð ökutækis og upplýsingum frá menntamálaráðuneyti um fjölda skóladaga á viðkomandi skólaári. Ráðherra setur vinnureglur um úthlutun framlagsins skv. tillögum ráðgjafarnefndar og að fenginni umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

V. KAFLI

Ýmis ákvæði.

14. gr.

Upplýsingaöflun til útreiknings framlaga.

Samband íslenskra sveitarfélaga, skólaskrifstofur sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitar­félaga annast upplýsingaöflun og útreikninga sem úthlutun framlaga byggist á, sé eftir því leitað.

Sveitarfélögum, stofnunum þeirra og öðrum opinberum aðilum er skylt að láta Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í té allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til ákvörðunar og úthlutunar framlaga úr sjóðnum.

15. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. janúar 2011. Þá fellur jafnframt úr gildi reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 113/2003, með síðari breytingum.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. desember 2010.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica