Samgönguráðuneyti

982/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 113/2003 með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

3. málsgrein 12. gr. hjóði svo:

Við útreikning á meðaltali skv. b-, c- og d-lið skal sleppa tekjum sem einstök sveitarfélög hafa af fasteignaskattsálagningu og framleiðslugjaldi af virkjunum og stórfyrirtækjum, enda hafi þær tekjur veruleg áhrif á niðurstöðu viðkomandi flokks.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 24. október 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica