Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

630/2012

Reglugerð um afnám reglugerðar nr. 583/2012, um breytingu á reglugerð nr. 770, 8. september 2006, um veiðar á íslenskri sumargotssíld. - Brottfallin

1. gr.

Með reglugerð þessari er felld úr gildi reglugerð nr. 583/2012, um breytingu á reglugerð nr. 770, 8. september 2006, um veiðar á íslenskri sumargotssíld.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 16. júlí 2012.

 F. h. r.

Hrefna Karlsdóttir.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica