Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

174/2021

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 188/2020, um veiðar á humri. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði til bráðabrigða orðist svo:

Allar veiðar með humarvörpu eru bannaðar, frá og með 16. mars 2021 til og með 15. mars 2022, á eftirfarandi svæðum:

  1. Lónsdýpi.
  2. Jökuldýpi.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. febrúar 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica