Matvælaráðuneyti

277/2022

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 188/2020, um veiðar á humri.

1. gr.

Ákvæði til bráðabirgða við reglugerðina orðist svo:

Allar veiðar á humri í fiskveiðilandhelgi Íslands eru bannaðar frá og með 16. mars 2022 til og með 15. mars 2024.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 8. og 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast gildi 15. mars 2022. Frá sama tíma fellur úr gildi reglu­gerð nr. 174/2021 um (1.) breytingu á reglugerð um veiðar á humri.

 

Matvælaráðuneytinu, 4. mars 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica