1. gr.
Fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur það hlutverk að jafna aðstöðu sveitarfélaga við uppbyggingu eða breytingar á fasteignum sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk með miklar og/eða sértækar stuðningsþarfir. Fasteignasjóði er jafnframt ætlað að stuðla að úrbótum í ferlimálum fatlaðs fólks, einkum hvað varðar aðgengi að fasteignum, mannvirkjum og útisvæðum sem eru á vegum sveitarfélaga. Þá fer Fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga með réttindi og skyldur er tengjast fasteignum í eigu ríkisins sem nýttar voru í þjónustu við fatlað fólk við yfirfærslu á málefnum fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga og er sjóðnum heimilt að leigja eða selja þær fasteignir.
Um úthlutun framlaga úr Fasteignasjóði til sveitarfélaga fer eftir ákvæðum reglugerðar þessarar.
2. gr.
Heimilt er að úthluta sveitarfélögum framlögum úr Fasteignasjóði til eftirfarandi verkefna á grundvelli umsóknar þeirra:
3. gr.
Fasteignasjóði er heimilt á árunum 2021 og 2022 að úthluta samtals kr. 363 milljónum í sérstök framlög sem nema 50% af heildarkostnaði tiltekinna framkvæmda sem lúta að eftirtöldum verkefnum:
4. gr.
Umsóknir sveitarfélaga um framlög úr Fasteignasjóði skv. 2. gr. ásamt fullnægjandi gögnum skulu hafa borist Jöfnunarsjóði eigi síðar en 1. október vegna næsta úthlutunarárs ásamt fullnægjandi gögnum. Jöfnunarsjóður gerir tillögu til ráðherra um heildarúthlutanir ársins vegna framlaga sem veitt eru á grundvelli 2. gr. fyrir 1. febrúar að fenginni umsögn ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Heimilt er að ákveða veitingu framlaga skv. 2. gr. til lengri tíma en eins árs ef nauðsyn krefur. Þá er heimilt að veita framlög vegna kostnaðar sem fallið hefur til allt að þremur árum fyrir úthlutunarár. Framlög skulu að jafnaði greidd út í samræmi við framvindu viðkomandi verkefna.
Umsóknir um sérstök framlög úr Fasteignasjóði skv. 3. gr. skulu berast Jöfnunarsjóði ásamt fullnægjandi gögnum eigi síðar en 31. desember 2022. Jöfnunarsjóður tekur afstöðu til umsókna eftir því sem þær berast og gerir tillögu til ráðherra um úthlutanir að fenginni umsögn ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Jöfnunarsjóður veitir vilyrði fyrir sérstöku framlagi sem veitt er á grundvelli 3. gr. og er framlagið greitt út þegar framkvæmdum er lokið.
Umsóknir um framlög úr Fasteignasjóði skal meta með hliðsjón af hagkvæmni, tilgangi og nauðsyn fyrirhugaðra framkvæmda og er ráðherra heimilt að synja framlögum í heild eða að hluta.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 4. mgr. 13. gr. b laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, sbr. lög nr. 9/2018, öðlast þegar gildi. Þá fellur jafnframt úr gildi reglugerð um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, nr. 460/2018.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 12. mars 2021.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.