Innviðaráðuneyti

708/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 280/2021 um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað ártalanna "2021 og 2022" kemur: 2023 og 2024.
  2. Í stað fjárhæðarinnar "kr. 364 milljónum" kemur: 415 milljónum.

 

2. gr.

Í stað ártalsins "2022" í 1. málsl. 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 2024.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 4. mgr. 13. gr. b laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, sbr. lög nr. 9/2018, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 14. júní 2023.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Hermann Sæmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica