Innanríkisráðuneyti

1200/2011

Reglugerð um tilvísanir til staðla og normskjala fyrir mælitæki. - Brottfallin

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi birtir tilvísanir í íslenska staðla og normskjöl eins og kveðið er á um í 13. gr. tilskipunar um mælitæki, sbr. reglugerð nr. 465/2007, um innleiðingu á tilskipun Evrópu­þingsins og ráðsins nr. 2004/22/EB um mælitæki.

2. gr.

Staðlar.

Í viðauka I er að finna tilvísanir í íslenska staðla, sem eru til framkvæmdar á sam­hæfðum Evrópustöðlum fyrir mælitæki, eftir því sem við á.

3. gr.

Normskjöl.

Í viðauka II er að finna tilvísanir í normskjöl, sem samin eru af alþjóðlegu lögmæli­fræði­stofnuninni (OIML) fyrir mælitæki, eftir því sem við á.

4. gr.

Um tilvísanir.

Innanríkisráðherra uppfærir árlega að tillögu Neytendastofu, eða þegar að breytingar verða á tilvísunum sem reglugerð þessi tekur til, tilvísanir til staðla og annarra norm­skjala, sbr. viðauka I og II við reglugerð þessa.

5. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 44. gr. laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn og með hliðsjón af ákvæði 13. gr. tilskipunar nr. 2004/22/EB, um mæli­tæki eins og sú tilskipun er innleidd í íslenskan rétt skv. ákvæði í reglugerð nr. 465/2007, um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22/EB um mælitæki.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi reglugerð nr. 460/2009 um til­vísanir til staðla og normskjala fyrir mælitæki.

Innanríkisráðuneytinu, 12. desember 2011.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica