Viðskiptaráðuneyti

460/2009

Reglugerð um tilvísanir til staðla og normskjala fyrir mælitæki. - Brottfallin

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi birtir tilvísanir í íslenska staðla og normskjöl eins og kveðið er á um í 13. gr. tilskipunar um mælitæki, sbr. reglugerð nr. 465/2007, um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22/EB um mælitæki.

2. gr.

Staðlar.

Í viðauka I er að finna tilvísanir í íslenska staðla, sem eru til framkvæmdar á sam­hæfðum Evrópustöðlum fyrir mælitæki, eftir því sem við á.

3. gr.

Normskjöl.

Í viðauka II er að finna tilvísanir í normskjöl, sem samin eru af alþjóðlegu lögmæli­fræði­stofnuninni (OIML) fyrir mælitæki, eftir því sem við á.

4. gr.

Gildistaka o.fl.

Viðskiptaráðherra skal árlega að beiðni Neytendastofu uppfæra viðauka I og II.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 44. gr. laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn og öðlast þegar gildi.

Viðskiptaráðuneytinu, 4. maí 2009.

Gylfi Magnússon.

Jónína S. Lárusdóttir.

VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica