Brottfallnar reglugerðir

68/1996

Reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. - Brottfallin

Fagleg samskipti heilsugæslulækna, heimilislækna og sérfræðinga.

1. gr.

Í samræmi við markmið um að tryggja fagleg samskipti milli heilsugæslulækna, heimilislækna og sérfræðinga er gert ráð fyrir því sem meginreglu í reglugerð þessari að samskipti sjúklings og læknis hefjist hjá heilsugæslu- eða heimilislækni.

Sjúklingur, sem kemur til sérfræðings fyrir milligöngu heilsugæslu- eða heimilislæknis skal hafa meðferðis beiðni frá lækninum. Sérfræðingurinn skal ávallt senda læknabréf til heilsugæslu- eða heimilislæknis sjúklings, sbr. þó 4. mgr.

Komi sjúklingur til sérfræðings án milligöngu heilsugæslu- eða heimilislæknis skal sérfræðingur þó ávallt senda heilsugæslu- eða heimilislækni viðkomandi læknabréf. Komi sjúklingur til sérfræðings fyrir milligöngu annars sérfræðings skal síðari sérfræðingurinn ávallt senda læknabréf til heilsugæslu- eða heimilislæknis sjúklingsins og þess sérfræðings sem hafði milligöngu um samskiptin, sbr. þó 4. mgr.

Sjúklingi er heimilt að óska þess við lækni að hann sendi ekki upplýsingar honum viðkomandi til annarra lækna. Þess skal þá getið í sjúkraskrá. Lækni er og skylt að útskýra fyrir sjúklingi ábyrgð þá sem þessu fylgir fyrir sjúklinginn sjálfan.

Greiðsla sjúkratryggðra vegna þjónustu á vegum almennrar heilsugæslu.

2. gr.

Fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis á dagvinnutíma skal greiða sem hér segir:

1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 700.

2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs, börn sem njóta umönnunarbóta og önnur börn undir 16 ára aldri, kr. 300.

Gjald þetta rennur til reksturs heilsugæslustöðvar eða stofureksturs heimilislæknis.

Undanþegnar gjaldskyldu eru komur vegna mæðra- og ungbarnaverndar og heilsugæslu í skólum.

3. gr.

Fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis utan dagvinnutíma, þ.e.a.s. milli kl. 17.00 og 08.00 og á laugardögum og helgidögum, skal greiða sem hér segir:

1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 1.100.

2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs, börn sem njóta umönnunarbóta og börn undir 16 ára aldri, kr. 500.

Hafi læknir sjálfur valið að sinna læknisstarfi utan dagvinnutíma skal greitt samkvæmt 2. gr.

Gjald þetta rennur einnig til reksturs heilsugæslustöðvar eða stofureksturs heimilislæknis.

Vitjanir.

4. gr.

1. Fyrir vitjun á dagvinnutíma skal greiða sem hér segir:

a. Sjúkratryggðir almennt, kr. 1.100.

b. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og börn sem njóta umönnunarbóta, kr. 400.

2. Fyrir vitjun utan dagvinnutíma skal greiða sem hér segir:

a. Sjúkratryggðir almennt, kr. 1.600.

b. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og börn sem njóta umönnunarbóta, kr. 600.

Hafi læknir sjálfur valið að sinna vitjun utan dagvinnutíma skal greiða vitjanagjald dagvinnutíma.

Í vitjanagjaldi eru innifaldar kr. 100 vegna óhjákvæmilegs ferðakostnaðar læknis.

Heimilt er að ákveða að ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og börn sem njóta umönnunarbóta greiði sama vitjanagjald og aðrir, en fái mismuninn endurgreiddan gegnum sjúkratryggingar, gegn framvísun kvittunar læknis.

Vitjanagjald dregst frá samningsbundinni þóknun læknis fyrir vitjanir.

10% sjóður heilsugæslustöðva.

5. gr.

Af gjaldi sem rennur til heilsugæslustöðvar skv. 2. og 3. gr. og renna skal til reksturs stöðvarinnar skal leggja 10% í sérstakan sjóð, sem stjórn stöðvarinnar annast. Úr sjóðnum má stjórnin ráðstafa fé til tækjakaupa, endurbóta á aðstöðu, til viðhaldsmenntunar starfsmanna o.þ.h. Sjóðstjórn setur reglur um ráðstöfun fjárins, sem ráðherra staðfestir.

Greiðsla sjúkratryggðra fyrir sérfræðilæknishjálp, rannsóknir og röntgengreiningu.

6. gr.

Greiðslur sjúkratryggðra fyrir sérfræðilæknishjálp, rannsóknir og röntgengreiningu, sem um ræðir í 36 gr. laga nr. 117/1993 með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir:

1. Fyrir hverja komu til sérfræðings, á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa, sbr. þó 10. gr., skal greiða sem hér segir, sbr. þó 9. gr.:

a. Sjúkratryggðir almennt, fyrstu 1.400 kr. og til viðbótar 40% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna sem umfram er. Fyrir komu til sérfræðings í augnlækningum til sjónmælingar vegna gleraugna greiða sjúkratryggðir almennt á aldrinum 16-70 ára fullt verð samkvæmt gjaldskrá sérfræðinga við Tryggingastofnun ríkisins.

b. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og börn sem njóta umönnunarbóta 500 kr. og til viðbótar 1/3 af 40% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna sem umfram er.

2. Fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknastofu og vegna rannsókna á sýni sem sent er til rannsóknar í rannsóknastofu, sbr. þó 10. gr. skal greiða sem hér segir, sbr. þó 9. gr.:

a. Sjúkratryggðir almennt, kr. 1.000.

b. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og börn sem njóta umönnunarbóta 300 kr.

3. Fyrir hverja komu til röntgengreiningar skal greiða sem hér segir, sbr. þó 9. gr.:

a. Sjúkratryggðir almennt, kr. 1.000.

b. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og börn sem njóta umönnunarbóta 300 kr.

Þegar reikningur er gerður til sjúkratrygginga fyrir sérfræðilæknishjálp, rannsóknir og röntgengreiningu skal draga greiðslu sjúkratryggðra frá umsömdu eða ákveðnu heildarverði vegna þessara þátta. Innifalinn í greiðslu sjúkratryggðra er kostnaður vegna hvers kyns einnota áhalda, umbúða og þess háttar. Því er óheimilt að krefja sjúkratryggða um sérstaka greiðslu vegna þessa kostnaðar.

Sérreglur fyrir atvinnulausa.

7. gr.

Einstaklingur sem verið hefur samfellt atvinnulaus í sex mánuði eða lengur skv. staðfestingu Atvinnuleysistryggingasjóðs á rétt á heilbrigðisþjónustu á sömu kjörum og ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs. Staðfestingu Atvinnuleyisstryggingasjóðs skal endurnýja á þriggja mánaða fresti. Réttur til afsláttarskírteinis fer samkvæmt 1. mgr. 8. gr. reglugerðar þessarar.

Afsláttarskírteini.

8. gr.

Þegar sjúkratryggður einstaklingur á aldrinum 16-70 ára hefur greitt kr. 12.000 á sama almanaksári vegna heimsókna á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis, vitjana lækna, sérfræðilæknishjálpar, þar með taldar heimsóknir á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku, rannsókna og röntgengreininga skal hann eiga rétt á afsláttarskírteini.

Börn undir 16 ára aldri með sama fjölskyldunúmer skv. skilgreiningu Hagstofu Íslands skulu teljast einn einstaklingur. Þegar greiddar hafa verið á sama almanaksári kr. 6.000 vegna heimsókna barna undir 16 ára aldri í sömu fjölskyldu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis, vitjana lækna, sérfræðilæknishjálpar, þar með taldar heimsóknir á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku, rannsókna og röntgengreininga, eiga forsjármenn barnanna rétt á afsláttarskírteini vegna þeirra.

Þegar ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar og ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs hafa greitt kr. 3.000 á sama almanaksári vegna heimsókna á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis, vitjana lækna, sérfræðilæknishjálpar, þar með taldar heimsóknir á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku, rannsókna og röntgengreininga, skulu þeir eiga rétt á afsláttarskírteini.

Greiðslur fyrir meðferð á glasafrjóvgunardeild Landspítalans, sbr. 10. gr. veita ekki rétt til afsláttarskírteinis samkvæmt þessari grein.

Greiðslur sjúkratryggðra með afsláttarskírteini.

9. gr.

Gegn framvísun kvittana fyrir greiðslur skv. 2. - 4. og 6. gr. skal Tryggingastofnun ríkisins afhenda sjúkratryggðum afsláttarskírteini skv. 8. gr., sem lækkar greiðslu vegna læknishjálpar o.fl. út almanaksárið. Kvittanir skulu auk nafns útgefanda bera með sér tegund þjónustu, fjárhæð, greiðsludag og nafn og kennitölu hins sjúkratryggða.

Hafi sjúkratryggður fengið afsláttarskírteini skv. þessari grein skal hann greiða sem hér segir fyrir læknisþjónustu það sem eftir er almanaksársins:

1. Fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis á dagvinnutíma:

a. Sjúkratryggðir almennt, kr. 300.

b. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs, börn með umönnunarbætur og börn yngri en 16 ára, kr. 100.

2. Fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis utan dagvinnutíma:

a. Sjúkratryggðir almennt, kr. 700.

b. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs, börn með umönnunarbætur og börn yngri en 16 ára, kr. 300.

3. Fyrir vitjun á dagvinnutíma:

a. Sjúkratryggðir almennt, þar á meðal börn yngri en 16 ára, kr. 700.

b. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og börn með umönnunarbætur, kr. 300.

4. Fyrir vitjun utan dagvinnutíma:

a. Sjúkratryggðir almennt, þar á meðal börn yngri en 16 ára, kr. 1.000.

b. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og börn með umönnunarbætur kr. 400.

5. Fyrir komu til sérfræðings, á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa:

a. Sjúkratryggðir, kr. 500 + 1/3 af 40% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna sem umfram er.

b. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og börn sem njóta umönnunarbóta, 1/9 af gjaldi samkvæmt a-lið 1. tl. 6. gr. þó að lágmarki kr. 300.

6. Fyrir rannsóknir:

a. Sjúkratryggðir almennt, kr. 400.

b. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og börn sem njóta umönnunarbóta, kr. 100.

7. Fyrir röntgengreiningu:

a. Sjúkratryggðir almennt, kr. 400.

b. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og börn sem njóta umönnunarbóta, kr. 100.

Heimilt er að ákveða að afsláttarskírteinishafar greiði sama vitjanagjald og aðrir en fái síðan mismuninn endurgreiddan gegnum sjúkratryggingar, gegn framvísun kvittunar læknis.

Greiðslur samkvæmt 1. og 2. tölul. 2. málsgr. renna til heilsugæslustöðva, sbr. og 2. og 3. gr. Vitjanagjald dregst frá samningsbundinni þóknun læknis fyrir vitjanir, sbr. og 4. gr.

Greiðslur sjúkratryggðra fyrir læknisvottorð vegna almannatrygginga og bóta félagslegrar aðstoðar.

10. gr.

Fyrir læknisvottorð á eyðublöðum Tryggingastofnunar ríkisins vegna almannatrygginga eða bóta félagslegrar aðstoðar skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir:

a. Ekkert gjald fyrir örorkuvottorð vegna lífeyristrygginga (A og B), örorkuvottorð vegna slysatrygginga (A), vottorð vegna fjárhagslegrar aðstoðar við fötluð og sjúk börn eða vottorð vegna endurhæfingarlífeyris.

b. Kr. 300 fyrir framhaldsvottorð vegna slysatrygginga.

c. Kr. 600 fyrir læknisvottorð vegna slysatrygginga (áverkavottorð), vegna beiðni um þjálfun, vegna öflunar hjálpartækja, vegna lengingar fæðingarorlofs, vegna hreyfihömlunar (bensínstyrkur), vegna heimahjúkrunar, vegna handarmeiðsla, vegna umsóknar um lyfjaskírteini, vegna utanfarar til lækninga, vegna vistunar sjúklings erlendis, vegna lýtalækninga, sjúkradagpeningavottorð eða skýrslu vegna ferðakostnaðar innanlands.

d. Kr. 700 fyrir læknisvottorð vegna umsóknar til kaupa á bifreið fyrir fatlaða.

Greiðsla sjúkratryggðra vegna meðferðar og rannsókna við ófrjósemisvandamálum á glasafrjóvgunardeild Landspítalans.

11. gr.

Fyrir meðferð á glasafrjóvgunardeild Landspítalans skal greiða sem hér segir:

1. Par sem ekki á barn saman:

a) fyrsta meðferð 115.000

b) önnur til fjórða meðferð 65.000

c) fimmta meðferð eða fleiri 215.000

2. Par sem á eitt barn saman:

a) fyrsta til fjórða meðferð 170.000

b) fimmta meðferð eða fleiri 215.000

Inni í þessari greiðslu felst kostnaður vegna nauðsynlegra rannsókna, lyfja og heimsókna til sérfræðinga á glasafrjóvgunardeildinni.

Greiðslur skulu skiptast þannig að í upphafi hverrar meðferðar sé greitt 20% af heildargjaldi. Eftirstöðvar gjalds skal greiða þegar ákveðið hefur verið að framkvæma eggheimtu.

3. Uppsetning frystra fósturvísa 35.000

4. Geymsla frystra fósturvísa 9.000 fyrir hvert byrjað geymsluár

Frysting fósturvísa er að öðru leyti innifalin í meðferðargjaldi.

5. Tæknisæðing, aðeins ef uppsetning er framkvæmd:

a) Sæði maka 18.000

b) Gjafasæði 28.000

Fyrir aðrar rannsóknir á glasafrjóvgunardeild sem ekki tengjast glasafrjóvgunarmeðferð skal greiða eins og um göngudeildarheimsóknir og rannsóknir sé að ræða.

Greiðsla sjúkratryggðra á kostnaði við sjúkraflutninga.

12. gr.

Hámarksfjárhæð sem sjúklingur skal greiða fyrir sjúkraflutninga á sjúkrahús og frá sjúkrahúsi skv. i-lið 1. málsgr. 36. gr. laga nr. 117/1993 er kr. 2.400.

Greiðsla vegna krabbameinsleitar á heilsugæslustöðvum og hjá heimilislæknum.

13. gr.

Vegna krabbameinsleitar á heilsugæslustöðvum og hjá heimilislæknum (legstrok og mynd af brjóstum) skal greiða kr. 1.500 fyrir hverja komu. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs greiða þó kr. 500. Gjald þetta rennur til Krabbameinsfélags Íslands vegna úrlesturs frumusýna, röntgenmynda og leitarstarfsins. Félagið greiðir læknum í samræmi við gjaldskrá Læknafélags Reykjavíkur um hópskoðanir vegna krabbameinsleitar.

14. gr.

Tryggingastofnun ríkisins skal kynna almenningi efni þessarar reglugerðar rækilega.

15. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 36. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar með síðari breytingum og 20. gr. laga nr. 97/1990 um heilbrigðisþjónustu með síðari breytingum öðlast gildi 1. febrúar 1996. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 14/1993 um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Frestun á gildistöku reglugerðar nr. 81/1995 sbr. auglýsingu nr. 235 frá 23. apríl 1995 heldur gildi sínu.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 22. janúar 1996.
Ingibjörg Pálmadóttir.
Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica