Sjávarútvegsráðuneyti

464/2004

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 234, 8. mars 2004, um humarveiðar. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

Felld brott með:

1. gr.

Á svæði 1: Lónsdýpi í 2. gr. reglugerðarinnar kemur nýr tl. á eftir 3. tl. sem verður 4. tl. og orðist svo: 64°08´00 N -14°50´00 V. Síðari tl. breytist í samræmi við það.


2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar til þess að öðlast þegar gildi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 28. maí 2004.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica