Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

214/2010

Reglugerð um humarveiðar. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til veiða með humarvörpu.

Humarveiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands eru aðeins heimilar fiskiskipum sem eru 540 BT og minni enda séu þau búin 740 kílówatta aðalvél eða minni.

Heimild til veiða er bundin því skilyrði að fiskiskip hafi aflamark í humri.

2. gr.

Aðeins er fiskiskipum, sbr. 1. gr. heimilt að stunda humarveiðar á tímabilinu frá og með 16. mars til og með 31. október á eftirgreindum svæðum:

 

Svæði 1: Lónsdýpi

1. 64° 13,00¢ N - 014° 22,00¢ V
2. 63° 56,00¢ N - 013° 58,00¢ V
3. 63° 52,00¢ N - 014° 12,00¢ V
4. 64° 08,00¢ N - 014° 50,00¢ V
5. 64° 12,00¢ N - 014° 46,00¢ V
6. 64° 15,00¢ N - 014° 37,00¢ V

Svæði 2: Hornafjarðardýpi

1. 63° 59,00¢ N - 014° 55,00¢ V
2. 63° 40,00¢ N - 014° 36,00¢ V
3. 63° 38,00¢ N - 014° 52,00¢ V
4. 64° 02,00¢ N - 015° 27,00¢ V
5. 64° 04,00¢ N - 015° 19,00¢ V

Svæði 3: Breiðamerkurdýpi

1. 64° 02,00¢ N - 016° 04,00¢ V
2. 63° 50,00¢ N - 015° 40,00¢ V
3. 63° 33,00¢ N - 015° 27,00¢ V
4. 63° 29,00¢ N - 015° 42,00¢ V
5. 63° 54,00¢ N - 016° 21,00¢ V
6. 63° 56,00¢ N - 016° 17,00¢ V

Svæði 4: Meðallandsbugur

1. 63° 46,00¢ N - 016° 45,00¢ V
2. 63° 21,00¢ N - 016° 42,00¢ V
3. 63° 17,00¢ N - 016° 56,00¢ V
4. 63° 16,00¢ N - 017° 09,00¢ V
5. 63° 30,00¢ N - 017° 30,00¢ V
6. 63° 31,00¢ N - 017° 46,00¢ V
7. 63° 39,00¢ N - 017° 40,00¢ V
8. 63° 44,00¢ N - 017° 17,00¢ V

Svæði 5: Eyjasvæði

1. 63° 28,00¢ N - 019° 50,00¢ V
2. 63° 23,00¢ N - 019° 38,00¢ V
3. 63° 19,00¢ N - 019° 43,00¢ V
4. 63° 09,00¢ N - 020° 21,00¢ V
5. 63° 08,00¢ N - 021° 00,00¢ V
6. 63° 14,00¢ N - 021° 37,00¢ V
7. 63° 12,00¢ N - 021° 54,00¢ V
8. 63° 34,00¢ N - 021° 58,00¢ V
9. 63° 33,00¢ N - 021° 41,00¢ V

 

10. 63° 26,00¢ N - 020° 47,00¢ V
11. 63° 21,00¢ N - 020° 49,00¢ V
12. 63° 17,00¢ N - 020° 36,00¢ V
13. 63° 20,00¢ N - 020° 17,00¢ V
14. 63° 24,00¢ N - 020° 13,00¢ V
15. 63° 28,00¢ N - 020° 00,00¢ V

Svæði 6: Grindavíkursvæði

1. 63° 47,00¢ N - 021° 42,00¢ V
2. 63° 42,00¢ N - 021° 30,00¢ V
3. 63° 36,00¢ N - 021° 58,00¢ V
4. 63° 37,00¢ N - 022° 19,00¢ V
5. 63° 25,00¢ N - 022° 28,00¢ V
6. 63° 29,00¢ N - 022° 48,00¢ V
7. 63° 31,00¢ N - 023° 08,00¢ V
8. 63° 24,00¢ N - 023° 20,00¢ V
9. 63° 22,00¢ N - 023° 37,00¢ V
10. 63° 20,00¢ N - 023° 41,00¢ V
11. 63° 22,00¢ N - 023° 58,00¢ V
12. 63° 34,00¢ N - 023° 35,00¢ V
13. 63° 34,00¢ N - 023° 26,00¢ V
14. 63° 40,00¢ N - 023° 16,00¢ V
15. 63° 47,00¢ N - 022° 47,00¢ V
16. 63° 45,00¢ N - 022° 36,00¢ V
17. 63° 45,00¢ N - 022° 14,00¢ V

Svæði 7: Eldeyjarsvæði

1. 64° 04,00¢ N - 022° 58,00¢ V
2. 63° 56,00¢ N - 022° 59,00¢ V
3. 63° 50,00¢ N - 022° 49,00¢ V
4. 63° 45,00¢ N - 023° 01,00¢ V
5. 63° 43,00¢ N - 023° 15,00¢ V
6. 63° 37,00¢ N - 023° 31,00¢ V
7. 63° 27,00¢ N - 023° 55,00¢ V
8. 63° 29,00¢ N - 024° 00,00¢ V
9. 64° 09,00¢ N - 023° 35,00¢ V

Svæði 8: Jökuldýpi

1. 64° 37,00¢ N - 023° 11,00¢ V
2. 64° 25,00¢ N - 022° 54,00¢ V
3. 64° 18,00¢ N - 023° 19,00¢ V
4. 64° 22,00¢ N - 023° 32,00¢ V
5. 64° 33,00¢ N - 023° 58,00¢ V
6. 64° 39,00¢ N - 023° 36,00¢ V



3. gr.

Slitinn humar 6-10 g að þyngd og óslitinn 20-33 g að þyngd, telst ekki með til aflamarks, enda fari hlutfall þess stærðarflokks ekki yfir 10% af humarafla skipsins í veiðiferð.

Löggiltur vigtarmaður staðfesti á vigtarnótu magn og hlutfall slitins og óslitins humars í ofangreindum stærðarflokki í afla hverrar veiðiferðar. Liggi slík staðfesting ekki fyrir telst humarinn að fullu metinn til aflamarks.

4. gr.

Lágmarksmöskvastærð í netþaki humarvörpu skal vera 135 mm en 80 mm í öðrum hlutum vörpunnar. Humarvarpa skal búin legggluggum skv. A- eða B-lið eða slöku yfirbyrði skv. C-lið hér að neðan.

Um mælingar á möskvum vísast til reglugerðar nr. 24/1998, um möskvamæla og framkvæmd möskvamælinga. Þegar möskvastærðir eru tilgreindar er átt við innanmál möskva nema annað sé tekið fram.

 

A)

Varpa með leggglugga: Skylt er að hafa tvö ferhyrnd netstykki á legg úr a.m.k. 185 mm möskvastærð á efra byrði vörpubelgs. Fremra netstykkið skal vera a.m.k. 4 metrar að lengd og skal fremsti hluti þess vera innan við 0,4 metrar frá netþaki. Aftara netstykkið skal vera a.m.k. 2 metrar að lengd og skal það staðsett að hámarki 2 metrum aftan við fremra netstykkið. Afturhorn netstykkjanna skal festa ekki fjær hliðarleisum en sem nemur 20 opnum möskvum. Hverjir 200 mm leggstykkisins skulu festir á móti a.m.k. 7 upptökum af 80 mm byrðinu. Ef möskvar í yfirbyrði eru stærri en lágmarksmöskvastærð segir til um skal fellingin vera sambærileg og þegar 80 mm eru notaðir.

 

B)

Varpa með leggglugga og tveimur belgjum: Sé notuð tveggja belgja humarvarpa skal tveimur ferhyrndu netstykkjunum hnýttum á legg komið fyrir í hvorum belg vörpunnar sömu stærðar og segir í A-lið og þau fest eins og þar er kveðið á um. Þó skal aftara innra horn fremri netstykkjanna festa ekki fjær miðleisi en nemur 40 möskvum.

 

C)

Varpa með slöku yfirbyrði: Slakt yfirbyrði með 135 mm lágmarksmöskvastærð skal ná frá netþaki og aftur að þeim stað sem breidd undirbyrðis samsvarar 150 möskvum milli leisa af 80 mm möskvastærð. Þó skal slaka yfirbyrðið ekki vera styttra en 12 metrar að lengd. Breidd yfirbyrðisins skal vera að hámarki 66% af samsvarandi breidd undirbyrðis. Lengd yfirbyrðisins skal vera a.m.k. 33% meiri en samsvarandi lengd undirbyrðis. Netslaka í yfirbyrði skal dreift jafnt við samsetningu yfir- og undirbyrðis.



Óheimilt er að nota nokkurn þann útbúnað sem þrengir, herpir eða lokar á nokkurn hátt möskvum eða umbúnaði af nokkru tagi til þess að koma í veg fyrir rennsli afla aftur í poka. Þó er heimilt að festa allt að 9 metra langt hlífðarnet undir pokann með a.m.k. sömu möskvastærð og er í undirbyrði pokans og skal hún fest að framan og á hliðum en opið að aftan. Einnig er heimilt að þrengja poka á leisum í 2 öftustu metrum pokans.

5. gr.

Á humarveiðum er óheimilt að hafa önnur veiðarfæri en humarvörpur um borð í veiðiskipinu. Óheimilt er að stunda botnfiskveiðar með humarvörpu.

6. gr.

Skylt er að hirða allan humar og fiskafla, sem fiskiskip fær í humarvörpu og reiknast fiskafli til botnfiskaflamarks skipsins. Skal botnfiski haldið aðgreindum eftir tegundum og hann veginn á löndunarstað skv. ákvæðum reglugerðar nr. 224/2006, um vigtun sjávarafla, með síðari breytingum.

Óheimilt er að frysta humar um borð í veiðiskipi.

7. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum.

Fiskistofa skal svipta skip leyfi til veiða í atvinnuskyni fyrir brot gegn reglugerð þessari, sbr. lög nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.

8. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 234, 8. mars 2004, um humarveiðar.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 15. mars 2010.

Jón Bjarnason.

Kristján Freyr Helgason.  

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica