Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

630/2016

Reglugerð um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2016/2017. - Brottfallin

I. KAFLI

Veiðileyfi í atvinnuskyni.

1. gr.

Veiðar í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu leyfi Fiskistofu. Um veitingu veiðileyfa í atvinnuskyni fer skv. 5. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

II. KAFLI

Heildarafli og veiðitímabil.

2. gr.

Leyfilegur heildarafli í óslægðum botnfiski, íslenskri sumargotssíld, humri og úthafsrækju:

Tegund/Lestir A B C D E F F 1 G H I
1. Þorskur                    
Til úthlutunar 244.000 767 2.198 2.191 5.129 276   2.370 12.932 231.068
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.   415 1.187 1.184 2.771 149   1.280    
Samtals þorskur liðir B til G   1.182 3.385 3.375 7.900 425   3.650    
2. Ýsa                    
Til úthlutunar 34.600 134 362 955       383 1.834 32.766
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.   56 152 400       161    
Samtals ýsa liðir B til G   190 514 1.355       544    
3. Ufsi                    
Til úthlutunar 55.000 350 765   1.000     800 2.915 52.085
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.                    
Samtals ufsi liðir B til G   350 765   1.000     800    
4. Steinbítur                    
Til úthlutunar 8.811 19 64 327       57 467 8.344
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.   22 74 373       65    
Samtals steinbítur liðir B til G   41 138 700       122    
5. Gullkarfi                    
Til úthlutunar 47.205 173 563 40 100     459 2.502 44.703
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.                    
Samtals gullkarfi liðir B til G   173 563 40 100     459    
6. Keila                    
Til úthlutunar 3.380   60 60       59 179 3.201
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.                    
Samtals keila liðir B til G     60 60       59    
7. Langa                    
Til úthlutunar 8.143 64 198 170         432 7.711
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.                    
Samtals langa liðir B til G   64 198 170            
8. Blálanga 2.040               108 1.932
9. Djúpkarfi 12.922               685 12.237
10. Grálúða 13.536               717 12.819
11. Gulllax 7.885               418 7.467
12. Humar 1.300               69 1.231
13. Íslensk sumargotssíld 63.000           758*   3.339 59.661
14. Langlúra 1.110               59 1.051
15. Litli karfi 1.500               80 1.421
16. Sandkoli 500               27 474
17. Skarkoli 7.330               388 6.942
18. Skrápflúra 0               0 0
19. Skötuselur 711               38 673
20. Úthafsrækja 4.100               217 3.883
21. Þykkvalúra 1.087               58 1.029
* Ónotað frá fyrra ári                    

Skýringar á töflu:

  A. Leyfilegur heildarafli.
  B. Til uppbóta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 (skel- og rækjubætur).
  C. Til ráðstöfunar skv. 2. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 (til stuðnings byggðar­lögum).
  D. Til línuívilnunar skv. 8. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006.
  E. Til strandveiða skv. 6. gr. a laga nr. 116/2006.
  F. Til frístundaveiða skv. 5. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006.
  F1. Til ráðstöfunar vegna smábáta skv. ákvæði til bráðabirgða VIII laga  nr. 116/2006.
  G. Byggðakvóti Byggðastofnunar skv. 10. gr. a. laga nr. 116/2006.
  H. Samkvæmt 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3 %).
  I. Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar.

Aflamark í botnfiski miðast við slægðan fisk með haus nema í gullkarfa, litla karfa, gulllax, og djúpkarfa sem miðast við óslægðan fisk.

Veiðitímabil botnfisks er frá og með 1. september 2016 til og með 31. ágúst 2017.

Aflamark í sandkola og skrápflúru miðast við afla sem veiddur er á svæði sunnan 64°30´N við Austurland og sunnan við línu sem dregin er réttvísandi vestur úr Öndverðarnesi. Afli í sandkola og skrápflúru sem veiddur er norðan þessara lína reiknast ekki til aflamarks, sbr. 2. mgr. 15. gr.

Aflamark í humri miðast við slitinn humar.

Heimilt er að veiða rækju við Snæfellsnes frá og með 1. maí og til og með 15. mars ár hvert.

Veiðitími humars og íslenskrar sumargotssíldar er ákveðinn í sérstakri reglugerð.

Aflamark í uppsjávarfiski miðast við óslægðan fisk.

3. gr.

Leyfilegur heildarafli í eftirfarandi tegundum, á viðkomandi tímabilum:

  Lestir Skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar Veiðitímabil
1. Hörpudiskur        
2. Innfjarðarækja:        
Innfjarðarækja skiptist:        
Arnarfjörður        
Breiðafjörður, norðurfirðir        
Eldeyjarsvæði        
Húnaflói        
Ísafjarðardjúp        
Skagafjörður        
Skjálfandaflói        
Öxarfjörður        

Leyfilegur heildarafli í innfjarðarækju er miðaður við bráðabirgðatillögur Hafrannsóknastofnunar og verður ákvörðun um heildarafla innfjarðarækju endurskoðuð að fengnum nýjum tillögum stofnunarinnar.

Veiðitími og heildarafli annarra tegunda er ákveðinn í sérstakri reglugerð eða með sérstökum leyfum.

Veiðitímabil innfjarðarækju er skv. reglugerð um rækjuveiðar innfjarða. Heimilt er með tilkynningu til leyfishafa að breyta veiðitíma á ákveðnum veiðisvæðum innfjarðarækju, að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar.

3. gr. a

Á árinu 2016 er íslenskum skipum heimilt að veiða 43,71 tonn af Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski miðað við afla upp úr sjó. Af þeim heimildum er 38 tonnum úthlutað til veiða með línu og 5,71 tonnum vegna áætlaðs meðafla íslenskra skipa á bláuggatúnfiski sbr. reglugerð um veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski.

III. KAFLI

Frádráttur aflaheimilda fyrir úthlutun aflamarks og skiptimarkaður með aflamark.

4. gr.

Fyrir úthlutun aflamarks allra tegunda til einstakra skipa, sem háðar eru takmörkun á leyfilegum heildarafla fiskveiðiárið 2016/2017 skal draga 5,3% frá úthlutun hverrar tegundar, sbr 3., 5. og 6. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006. Skal því ráðstafað samkvæmt 6. gr. a, 1. tl. 1. mgr. 10. gr., 2. tl. 1. mgr. 10. gr., 5. mgr. 6. gr., 10. gr. a  og 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XIII  laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða,sbr. töflu í 2. gr.

5. gr.

Fiskistofa skal sjá um framkvæmd skipta sbr. 6. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og annast skiptimarkað fyrir aflamark.  

Við framkvæmd skiptimarkaðar skal Fiskistofa auglýsa hverju sinni eftir tilboðum í það magn aflamarks sem ráðherra ákveður. Auglýsa skal eftir tilboðum í tiltekið magn aflamarks í einstakri tegund í skiptum fyrir aflamark í einni af eftirfarandi tegundum: Þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa, svo lengi sem aflamark er til ráðstöfunar. Fiskistofa hefur heimild til að binda tilboð við tiltekna tegund til að ná markmiðum 2. ml. 1. mgr. 4. gr. þessarar reglugerðar.

Fiskistofa skal auglýsa eftir tilboðum eigi síðar en 10. hvers mánaðar, frá og með 10. október til og með 10. júlí. Tilboð skulu berast Fiskistofu fyrir kl. 16.00 sjö dögum frá birtingu auglýsingar á heimasíðu Fiskistofu. Þegar tilboð berst Fiskistofu er það bindandi fyrir aðila. Þó er aðila heimilt að afturkalla tilboð sitt enda berist afturköllunin Fiskistofu áður en tilboðsfrestur er liðinn. Fiskistofu er einungis heimilt að veita upplýsingar um tilboð eftir að tilboðsfrestur er liðinn og skal þá birta upplýsingarnar á heimasíðu Fiskistofu. Birta skal einungis upplýsingar um samþykkt tilboð.

Fiskistofa ákveður form tilboða. Í tilboði skal útgerðaraðili skips tilgreina magn þeirrar tegundar sem boðið er í og magn þeirrar tegundar sem boðið er í skiptum, svo og önnur atriði sem Fiskistofa ákveður.

Fiskistofa skal samþykkja það tilboð sem hæst er. Við mat tilboða skal Fiskistofa, þar sem tilboð geta falið í sér mismunandi tegundir sem endurgjald, miða við meðalverð tegunda í viðskiptum með aflamark, sem birt er á vef Fiskistofu, undanfarna 30 daga eða eftir atvikum síðasta mánuð sem viðskipti voru með tegund. Ef hæstu tilboð eru jöfn skal magni skipt hlutfallslega á milli tilboðsgjafa. Ef hæsta tilboð er aðeins í hluta þess magns sem í boði er skal það samþykkt. Síðan skal næst hæsta tilboðið samþykkt, þar til því aflamarki sem var í boði hefur verið ráðstafað. Fiskistofa getur hafnað tilboðum í tegund þegar þorskígildistonn uppboðstegundar Fiskistofu er lægra en 50% þorskígildistonna skiptitegundar (þorskur, ýsa, ufsi, steinbítur, löngu, keilu og gullkarfa).

Ef aflamark í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu eða gullkarfa sem látið hefur verið í skiptum, er umfram það aflamark sem innheimta skal, er heimilt að bjóða þær tegundir á skiptimarkaði.

Aflamark sem látið er í skiptum telst ekki flutt af skipi í skilningi 15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

IV. KAFLI

Úthafsrækjuveiðisvæði.

6. gr.

Til úthafsrækju telst rækja, sem veidd er á svæðum, sem skilgreind eru í reglugerð um úthafsrækjuveiðisvæði o.fl.

Úthafsrækju sem veidd er á Dohrnbanka vestan 26°V og norðan 65°30´N skal skrá sérstaklega. Skip sem stunda veiðar á Dohrnbanka skulu búin fjarskiptabúnaði, sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til Landhelgisgæslunnar um staðsetningu skipsins á klukkustundar fresti, frá því skipið lætur úr höfn og þar til það kemur til hafnar að nýju til löndunar afla.

V. KAFLI

Skipting leyfilegs afla.

7. gr.

Veiðiheimildum í þeim tegundum sem heildarafli er takmarkaður af, skv. 2. og 3. gr. skal skipt milli einstakra skipa í samræmi við aflahlutdeild eða krókaaflahlutdeild þeirra í viðkomandi tegund. Úthlutað aflamark/krókaaflamark hvers skips í hverri einstakri tegund ræðst annars vegar af aflahlutdeild/krókaaflahlutdeild skipsins í viðkomandi tegund en hins vegar af úthlutuðu heildaraflamarki í tegundinni skv. 2. og 3. gr.

VI. KAFLI

Krókaaflamarksbátar.

8. gr.

 Þeir bátar einir geti öðlast veiðileyfi með krókaaflamarki sem eru styttri en 15 metrar að mestu lengd og minni en 30 brúttótonn, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Óheimilt er að stækka bátana þannig að þeir verði stærri en þessu nemur. Þeir bátar sem eru umfram þá stærð og hafa krókaaflamarksleyfi við gildistöku þessarar reglugerðar halda þó leyfinu, sbr. ákvæði til bráðabirgða XII laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Bátum, sem leyfi hafa til veiða með krókaaflamarki, skal úthlutað krókaaflamarki í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu, blálöngu, litla karfa og gullkarfa á grundvelli krókaaflahlutdeildar þeirra. Um krókaaflahlutdeild og krókaaflamark gilda sömu reglur um útreikning, nýtingu og framsal og gilda um aflahlutdeild og aflamark nema öðruvísi sé kveðið á um í lögum eða reglugerð þessari.

Bátum sem leyfi hafa til veiða með krókaaflamarki, er einungis heimilt að stunda veiðar með línu og handfærum. Ráðherra getur veitt undanþágu frá banni þessu með sérstökum leyfum til veiða á botndýrum með plógum og gildrum svo og til hrognkelsaveiða í net. Afli sem fæst við slíkar veiðar reiknast til aflamarks bátsins.

Heimilt er að flytja til krókaaflamarksbáts aflamark í öðrum tegundum botnfisks en tilgreindar eru í 1. mgr. þessarar greinar. Heimilt er að flytja aflamark í ufsa frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í ýsu.

Aflahlutdeild í öðrum tegundum en tilgreindar eru í 1. mgr. er ekki heimilt að flytja til krókaaflamarksbáts. Heimilt er að flytja aflamark í ufsa og þorski frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í ýsu. Veiði bátur aðrar tegundir en hann hefur krókaaflamark í, skal skerða aflamark hans í öðrum tegundum skv. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fisk­veiða, og reglur settar samkvæmt þeim ákvæðum. Hverjum báti skal þó heimilt, sbr. 7. gr. laganna, án þess að til skerðingar komi, að veiða allt að 2,0% af heildarafla sínum í kvótabundnum botnfisk­tegundum, öðrum en þeim sem tilgreindar eru í 1. mgr., þó þannig að afli í einni tegund fari aldrei yfir 1% af heildarafla bátsins.

VII. KAFLI

Útreikningur aflamarks.

9. gr.

Þegar umreikna skal óslægðan fisk í slægðan skal margfalda magn þorsks, ýsu og ufsa með 0,84, grálúðu, skarkola, sandkola, skrápflúru, langlúru og þykkvalúru með 0,92, steinbíts, keilu og skötusels með 0,90 og löngu og blálöngu með 0,80.

Þegar umreikna skal slægðan fisk í óslægðan skal deila í magn þorsks, ýsu og ufsa með 0,84, grálúðu, skarkola, sandkola, skrápflúru, langlúru og þykkvalúru með 0,92, steinbíts, keilu og skötusels með 0,90 en löngu og blálöngu með 0,80.

Þegar umreikna skal slitinn humar yfir í óslitinn skal margfalda vegið magn humarhala með 3,25. Þegar umreikna skal óslitinn humar yfir í slitinn humar skal deila í vegið magn óslitins humars með 3,25.

Við umreikning landaðra grásleppuhrogna í heila grásleppu til skráningar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við margföldunarstuðulinn 3,4.

Grásleppa skal vegin á hafnarvog samkvæmt ákvæðum 6. gr. reglugerðar nr. 224/2006, um vigtun og skráningu sjávarafla. Við vigtun grásleppuhrogna skal brúttóvigta aflann og skrá fjölda tunna eða kara. Við ákvörðun magns hrogna til skráningar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við reiknistuðulinn 0,80.

Þorskur styttri en 50 sm (27 sm hausaður) og ufsi styttri en 50 sm (31 sm hausaður), ýsa styttri en 45 sm (26,5 sm hausuð) og gull- og djúpkarfi styttri en 33 sm teljast að hálfu til aflamarks, enda fari afli undir áðurgreindum stærðarmörkum ekki yfir 10% af viðkomandi tegund í veiðiferð. Undirmálsafla skal haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn sérstaklega af löggiltum vigtarmanni. Þó er heimilt að ákvarða magn undirmáls í gull- og djúpkarfaafla við endurvigtun í vinnsluhúsi. Skal gullkarfa og djúpkarfa sem þannig er flokkaður frá í vinnsluhúsi til ákvörðunar á magni undirmáls, haldið aðgreindum frá öðrum afla. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda þó ekki um afla sem flakaður er um borð í veiðiskipi. Hausaðan fisk skal mæla frá sporðsenda að gotrauf.

Komi afli í veiðarfæri skips, sem er selbitinn eða skemmdur á annan hátt, sem ekki er unnt að komast hjá við tilteknar veiðar, skal ekki reikna þann afla til aflamarks enda sé honum haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega. Þennan afla er eingöngu heimilt að nýta til bræðslu.

Heimilt er skipstjóra að ákveða að hluti aflans reiknist ekki til aflamarks skipsins. Þessi heimild takmarkast við 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla, sem viðkomandi skip veiðir á fiskveiðiárinu og er bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Aflanum sé haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega.
  2. Aflinn sé seldur á uppboði á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla og and­virði hans renni til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins sbr. lög nr. 37/1992, með síðari breytingum.
  3. Heimildin skiptist í fjögur þriggja mánaða tímabil á fiskveiðiárinu. Ekki er heimilt að flytja ónýttar heimildir milli tímabilanna. Þó má miða ýsuafla sem fæst sem meðafli eða meðafla við grásleppuveiðar, við heimild fiskveiðiársins í heild, enda sé sá afli gerður upp í lok þess.

Um heimild til veiða umfram aflamark í einstökum fisktegundum sem skerðir aflamark annarra botnfisktegunda hlutfallslega gilda ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

Sé botnfiskafli fluttur óunninn á erlendan markað án þess að hafa verið endanlega vigtaður hér á landi og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal reikna aflann með 5% álagi.

10. gr.

Þegar meta skal til hvaða fiskveiðiárs tiltekinn afli telst, skal miða við hvenær afla er landað hér á landi. Þannig telst afli sem landað er 1. september 2016 eða síðar til fiskveiðiársins 2016/2017, enda þótt veiðiferð hefjist fyrir upphaf þess fiskveiðiárs.

Sigli skip með eigin afla á erlendan markað, skal afli teljast til þess fiskveiðiárs, þá er skipið sannanlega hættir veiðum fyrir siglingu.

VIII. KAFLI

Framsal aflamarks og aflahlutdeildar.

11. gr.

Þegar fiskiskipi hefur verið úthlutað aflamarki, er heimilt að flytja aflamarkið á milli fiskiskipa enda leiði flutningurinn ekki til þess að veiðiheimildir skipsins verði bersýnilega umfram veiðigetu þess. Krókaaflamark verður aðeins flutt til báts, sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og uppfyllir stærðarmörk sem kveðið er á um í 8.gr.

Á hverju fiskveiðiári er heimilt að flytja af fiskiskipi 50% þess aflamarks sem skipi var úthlutað í þorskígildum talið á grundvelli verðmætahlutfalla einstakra tegunda. Auk þess er heimilt að flytja frá skipi það aflamark í einstökum tegundum sem flutt hefur verið til skips. Heimilt er Fiskistofu að víkja frá þessari takmörkun á heimild til flutnings á aflamarki vegna varan­legra breytinga á skipakosti útgerða eða þegar skip hverfur úr rekstri um lengri tíma vegna alvarlegra bilana eða sjótjóns.

Tilkynna skal Fiskistofu um flutning aflamarks á eyðublaði sem Fiskistofa gefur út og öðlast flutningurinn ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest hann. Í tilkynningunni skulu koma fram upp­lýsingar um nöfn og skipaskrárnúmer þeirra skipa sem aflamark er flutt á milli og magn aflamarks, auk upplýsinga um verð aflamarks nema skipin séu í eigu sama aðila. Eigandi og útgerðaraðili þess skips sem aflamarkið er flutt frá skulu undirrita og leggja fram tilkynningu um flutning og skal tilkynningin einnig vera undirrituð af útgerðaraðila þess skips sem aflamarkið er flutt til.

Tilkynningu um flutning aflamarks skal fylgja staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs um að fyrir liggi samningur útgerðar og áhafnar þess skips sem aflamarkið er flutt til, um fiskverð til viðmiðunar hlutaskiptum. Skal sá samningur uppfylla kröfur sem Verðlagsstofa skiptaverðs gerir skv. ákvæðum laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna með síðari breytingum. Telji Verðlagsstofa skiptaverðs að gildissvið laga nr. 13/1998 nái ekki yfir við­komandi skip, skal staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs lúta að því.

Sá sem tilkynnir um flutning aflamarks skal greiða flutningsgjald fyrir hverja tilkynningu skv. gjaldskrá Fiskistofu. Þá skal útgerð greiða skv. gjaldskrá Fiskistofu hafi komið til skeytasendingar Fiski­stofu til útgerðar og skipstjóra skv. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 57/1996, með síðari breytingum. Gjald­dagi reiknings er við útgáfu hans og eindagi 15 dögum síðar. Gjaldið er óendurkræft. Hafi reikningur ekki verið greiddur á eindaga er Fiskistofu heimilt að stöðva frekari flutning aflamarks frá og til við­komandi fiskiskips.

Heimilt er Fiskistofu að gera þjónustusamninga um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks milli fiskiskipa sem eru í eigu sama einstaklings eða lögaðila og skal greiða skv. gjaldskrá Fiskistofu fyrir slíka samninga fyrir hvert fiskveiðiár. Sækja skal til Fiskistofu um gerð þjónustusamnings um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til. Á umsóknar­eyðublöðunum skulu koma fram þær upplýsingar sem Fiskistofa telur nauðsynlegar og óskar þar eftir. Verði breytingar á atriðum sem útgerð hefur tilgreint í umsókn sinni skal hlutaðeigandi útgerð tilkynna Fiskistofu skriflega um breytingarnar án tafar.

Útgerð ber alfarið ábyrgð á öllum rafrænum tilkynningum um flutning aflamarks sem fram­kvæmdar eru samkvæmt þjónustusamningi hennar við Fiskistofu og skal útgerðin tryggja að óvið­komandi aðilar komist ekki yfir aðgang hennar til að tilkynna Fiskistofu rafrænt um flutning afla­marks. Þjónustusamningur um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks fellur úr gildi verði van­skil á greiðslu gjalds fyrir samninginn og ef hlutaðeigandi útgerð hefur brotið gegn reglum er gilda um flutning aflamarks eða skilyrðum sem sett hafa verið varðandi rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks.

Fiskistofa skal daglega birta aðgengilegar upplýsingar um flutning aflamarks, þar á meðal um magn eftir tegundum, auk upplýsinga um verð, þar sem við á.

Tilkynning um flutning aflamarks skal hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 15 dögum eftir að veiðitímabili lýkur.

12. gr.

Flutning á aflahlutdeild milli fiskiskipa skal tilkynna Fiskistofu skriflega fyrirfram. Beiðni um flutning skal sett fram á eyðublaði sem Fiskistofa gefur út. Krókaaflahlutdeild verður aðeins flutt til báts sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og uppfyllir stærðarmörk sem kveðið er á um í 8. gr. Eigandi þess skips, sem aflahlutdeildin er flutt frá, skal undirrita beiðni um flutning og skal undirritun hans staðfest af tveimur vottum. Við flutning á aflahlutdeild skal leggja fram veðbókarvottorð þess skips sem flutt er frá auk skriflegs samþykkis eftirgreindra aðila:

  1. þeirra er þinglýst samningsveð áttu í skipinu 1. janúar 1991,
  2. þeirra, sem eiga þinglýsta kvöð á skipinu þar sem kveðið er á um að framsal aflahlutdeildar sé óheimilt án samþykkis kvaðarhafa,
  3. þinglýst samþykki þeirra, sem eiga þinglýst samningsveð í skipinu frá og með 1. janúar 1998.

Flutningur aflahlutdeildar öðlast ekki gildi fyrr en staðfesting Fiskistofu liggur fyrir. Aldrei er heimilt að flytja aflahlutdeild milli skipa, leiði slíkur flutningur til þess að veiðiheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess.

Umsóknir um flutning aflahlutdeildar milli fiskiskipa ásamt fullnægjandi fylgigögnum skulu hafa borist Fiskistofu eigi síðar en einum mánuði fyrir lok fiskveiðiárs. Berist umsókn innan mán­aðar, hefur flutningur aflahlutdeildar ekki áhrif á úthlutun aflamarks komandi fiskveiðiárs.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, ein­stak­linga eða lögaðila eða í eigu tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild en til­greint er í 13. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Fyrir staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeildar og krókaafla­hlutdeildar milli skipa skal eigandi þess skips sem flutt er frá greiða skv. gjaldskrá Fiskistofu.

IX. KAFLI

Veiðiskylda.

13. gr.

Veiði fiskiskip minna en 50% á fiskveiðiári af úthlutuðu aflamarki sínu og aflamarki sem flutt hefur verið frá fyrra fiskveiðiári, í þorskígildum talið, fellur aflahlutdeild þess niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur. Skal við mat á þessu hlutfalli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips skv. 14. gr. Viðmiðunarhlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu á þeim tegundum sem ekki hefur verið samið um veiðistjórn á. Hið sama á við þegar skipi er haldið til veiða utan lögsögu á tegundum sem samið hefur verið um veiðistjórn á og ekki teljast til deilistofna. Tefjist skip frá veiðum í fimm mánuði samfellt vegna tjóns eða meiri háttar bilana hefur afli þess fiskveiðiárs ekki áhrif til niðurfellingar aflahlutdeildar samkvæmt þessari grein.

X. KAFLI

Þorskígildisstuðlar.

14. gr.

Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2016 til 31. ágúst 2017 eru þessir:

Tegund Stuðlar Tegund Stuðlar Tegund Stuðlar
Blálanga 0,56 Kolmunni 0,09 Skrápflúra 0,34
Djúpkarfi 0,85 Langa 0,68 Skötuselur 2,17
Grálúða 2,65 Langlúra 0,48 Steinbítur 0,64
Gullkarfi 0,69 Litli karfi 0,32 Ufsi 0,79
Gulllax 0,41 Loðna 0,17 Úthafsrækja 1,53
Humar, slitinn 6,10 Norsk-íslensk síld 0,19 Ýsa 1,04
Innfjarðarækja 1,26 Rækja við Snæfellssnes 1,63 Þorskur 1,00
Íslensk sumargotssíld 0,18 Sandkoli 0,19 Þykkvalúra 1,39
Keila 0,42 Skarkoli 0,67    

Ofangreindir stuðlar gilda við mat á því hvernig veiðiheimildir eru nýttar og varðandi færslu milli tegunda eftir því sem við á, sbr. 11. og 15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

XI. KAFLI

Ýmis ákvæði.

15. gr.

Skipstjóra er skylt að halda fiski um borð í veiðiskipum aðgreindum eftir tegundum. Verði slíku ekki við komið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Ennfremur er skylt að láta vigta afla skv. ákvæðum III. kafla laga nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar og gildandi reglugerðar um vigtun sjávarafla.

Afla af skrápflúru og sandkola sem fenginn er á því veiðisvæði sem tilgreint er í 4. mgr. 2. gr. skal haldið aðskildum frá öðrum afla af þessum tegundum og hann veginn og skráður sérstaklega.

Skipstjórar fiskiskipa, sem halda til úthafsrækjuveiða á Dohrnbanka, sbr. 2. mgr. 6. gr., skulu tilkynna sérstaklega til Fiskistofu hvenær þær hefjast og hvenær þeim lýkur.

Ef haldið er til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands skal, þegar haldið er úr höfn, tilkynna Fiskistofu hvar fyrirhugað sé að stunda veiðar. Þá skal tilkynna hvenær veiðar hefjast og hvenær þeim lýkur, nema annað sé ákveðið í sérstökum reglugerðum um viðkomandi veiðar. Í tilkynning­unni komi fram, eftir því sem við á, áætlaður afli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.

Í einni og sömu veiðiferð er óheimilt að stunda veiðar bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands. Þetta gildir þó ekki, haldi skip til veiða utan lögsögunnar á úthafskarfa, síld, loðnu, kol­munna, túnfiski eða makríl, enda sé Fiskistofu tilkynnt um slíkt í samræmi við reglur þar að lútandi.

Heimilt er þó með samþykki Fiskistofu að víkja frá banni skv. 5. mgr., enda hafi afli og aflasamsetning um borð í fiskiskipi verið staðfest með fullnægjandi hætti að mati Fiskistofu, áður en skip flytur sig milli veiðisvæða utan og innan lögsögunnar.

Þegar skip stundar veiðar utan lögsögu Íslands, í fiskveiðilögsögu annars ríkis eða á alþjóðlegu hafsvæði, og um er að ræða veiðar sem grundvallast á samningi sem íslensk stjórnvöld eru ekki aðilar að, skal skipstjóri tilkynna Fiskistofu mánaðarlega um veiðisvæði, veiðitíma, löndunarhöfn og landaðan afla sundurliðað eftir tegundum.

16. gr.

Útgerðum skipa sem fengið hafa leyfi Fiskistofu til að vinna afla um borð er skylt að lokinni veiðiferð að skila sérstakri skýrslu um afla til Fiskistofu á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til.

Þá er skipstjórum fiskiskipa skylt að halda sérstakar afladagbækur sbr. reglugerð um afladagbækur.

Kaupendum afla er skylt að skila til Fiskistofu skýrslum um móttekinn afla í því formi, sem Fiskistofa ákveður sbr. reglugerð um skýrsluskil vegna viðskipta með afla.

17. gr.

Heimilt er að nýta báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, til veiða í frístundum, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, enda séu engin veiðarfæri um borð önnur en handfæri án sjálfvirknibúnaðar og/eða sjóstangir. Óheimilt er að selja aflann eða fénýta á annan hátt.

Skipstjórar báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni og fara til veiða skv. 1. mgr., skulu tilkynna Fiskistofu um það áður en veiðiferð hefst.

18. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

Um áminningar og sviptingu veiðileyfa vegna brota á ákvæðum reglugerðar þessarar fer skv. ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Um gjald vegna ólögmæts sjávarafla skal beita ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla.

19. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Ákvæði 4. gr. koma til framkvæmda við gildistöku þessarar reglugerðar, en ákvæði annarra greina 1. september 2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. júlí 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica