Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

391/2017

Reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 630/2016, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2016/2017. - Brottfallin

1. gr.

2. málsl. 3. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Heimilt er að flytja aflamark í ufsa og þorski frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í ýsu. Jafnframt er heimilt að flytja aflamark í steinbít frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í þorski, ýsu og löngu.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breyt­ingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. maí 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Erna Jónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica