Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

276/2017

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 630/2016 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2016/2017. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist eftirfarandi ákvæði til bráðabirgða:

Heimilt er að flytja allt að 30% af aflamarki hverrar botnfisktegundar frá fiskveiðárinu 2016/2017 yfir á fiskveiðiárið 2017/2018.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. apríl 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica