Viðskiptaráðuneyti

600/1995

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 594/1993, sbr. reglugerð nr. 375/1994 og reglugerð nr. 338/1995, um efnislegar samkeppnisreglur í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. - Brottfallin

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 594/1993, sbr. reglugerð nr. 375/1994 og reglugerð nr. 338/1995, um efnislegar samkeppnisreglur í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.

1. gr.

Á eftir 2. gr. a bætist við ný grein, 2. gr. b, sem hljóðar svo, sbr. e-lið 2. gr. b-lið 4. gr.:

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/95 frá 22. nóvember 1995 skal eftirtalin EB-gerð öðlast gildi hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIV. viðauka við EES-samninginn (um samkeppni), bókun I (um altæka aðlögun) og öðrum ákvæðum samningsins:

- reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2131/95 frá 7. september 1995 um breytingu á reglugerð (EBE) nr. 2349/84 um beitingu 3. mgr. 85. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum nytjaleyfissamninga vegna einkaleyfa.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 48. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993, öðlast þegar gildi.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og EB-gerðin, sem fela í sér breytingu á 5. lið XIV. viðauka við EES-samninginn og snerta beitingu 3. mgr. 53. gr. samningsins, eru birtar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB.

Viðskiptaráðuneytið, 23. nóvember 1995.
F. h. r.
Þorkell Helgason.
Jón Ögmundur Þormóðsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica