1. gr.
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 87/2007 frá 6. júlí 2007, gildir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB), nr. 1781/2006 frá 15. nóvember 2006, um upplýsingar um greiðanda sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna, að undanskildum ákvæðum 6. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar, hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af IX. viðauka við EES-samninginn um fjármálaþjónustu, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins.
2. gr.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar er birt á bls. 23 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 60, 14. árgangi og EB-gerðin í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11, 16. árgangi, bls. 180-191.
3. gr.
Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1781/2006 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 28. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 64/2006 og öðlast þegar gildi.
Viðskiptaráðuneytinu, 3. apríl 2009.
Gylfi Magnússon.
Jónína S. Lárusdóttir.