Velferðarráðuneyti

1205/2018

Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2019. - Brottfallin

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2019:

    frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Vegna fjármagnstekna skv. a-lið 2. mgr. 16. gr.     98.640  
b. Tekjutrygging vegna atvinnutekna    
  skv. ákvæði til bráðabirgða 1.315.200  
c. Ellilífeyrir, almennt skv. 3. málsl. 1. mgr. 23. gr.    300.000 6.916.133
d. Ellilífeyrir, vegna atvinnutekna    
  skv. 4. málsl. 1. mgr. 23. gr. 1.200.000  
e. Örorkulífeyrir skv. 5. mgr. 18. gr. 2.575.220 4.806.308
f. Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 19. gr. 2.575.220 4.774.388
g. Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 19. gr. 2.575.220 4.806.308
h. Aldurstengd örorkuuppbót (100%)    
  skv. 1. mgr. 21. gr. 2.575.220 4.806.308
i. Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna    
  skv. 3. mgr. 22. gr.   328.800  
j. Ráðstöfunarfé skv. 3. málsl. 8. mgr. 48. gr.   1.374.960

2. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2019:

    frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Endurhæfingarlífeyrir skv. 1. mgr. 7. gr. 2.575.220 4.806.308
b. Heimilisuppbót, almennt skv. 2. mgr. 8. gr.    300.000 6.622.185
c. Heimilisuppbót, vegna atvinnutekna skv. 2. mgr. 8. gr. 1.200.000  
d. Sérstök uppbót skv. 2. mgr. 9. gr.    
Til lífeyrisþega sem fær greidda heimilisuppbót      310.800
Til lífeyrisþega sem fær ekki greidda heimilisuppbót      247.183

3. gr.

Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 1052/2009, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2019:

    efra tekjumark kr.
Frekari uppbætur skv. 12. gr.   2.929.579

4. gr.

Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki hefur áhrif á bætur.

Efra tekjumark: Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2019. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1190/2017, um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2018.

Velferðarráðuneytinu, 17. desember 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica