Velferðarráðuneyti

1249/2016

Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2017. - Brottfallin

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2017:

    frítekjumark
kr.
efra tekjumark
kr.
a. Vegna fjármagnstekna skv. a-lið 2. mgr. 16. gr.     98.640  
b. Tekjutrygging vegna eigin atvinnutekna    
  skv. ákvæði til bráðabirgða 1.315.200  
c. Ellilífeyrir skv. 1. mgr. 23. gr.    300.000 6.399.573
d. Örorkulífeyrir skv. 5. mgr. 18. gr. 2.575.220 4.632.116
e. Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 19. gr. 2.575.220 4.602.676
f. Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 19. gr. 2.575.220 4.632.116
g. Aldurstengd örorkuuppbót (100%)    
  skv. 1. mgr. 21. gr. 2.575.220 4.632.116
h. Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna    
  skv. 3. mgr. 22. gr.    328.800  
i. Ráðstöfunarfé skv. 3. málsl. 8. mgr. 48. gr.   1.267.606

2. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2017:

    frítekjumark
kr.
efra tekjumark
kr.
a. Endurhæfingarlífeyrir skv. 1. mgr. 7. gr. 2.575.220 4.632.116
b. Sérstök uppbót skv. 2. mgr. 9. gr.    
  Til lífeyrisþega sem fær greidda heimilisuppbót      280.000
  Til lífeyrisþega sem fær ekki greidda heimilisuppbót      227.883

3. gr.

Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 1052/2009, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2017:

      efra tekjumark
kr.
  Frekari uppbætur skv. 12. gr.   2.700.840

4. gr.

Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki hefur áhrif á bætur.

Efra tekjumark: Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2017. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1235/2015, um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2016.

Velferðarráðuneytinu, 23. desember 2016.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica