Velferðarráðuneyti

1219/2012

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 213/1991, um greiðslur vasapeninga sjúkratryggðra, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

1. mgr. 3. gr. orðast svo:

Upphæð vasapeninga er 50.000 kr. á mánuði. Tekjur skulu hafa áhrif á fjárhæð vasa­peninga á þann hátt að 65% af tekjum hlutaðeigandi dragast frá fjárhæð þeirra og falla greiðslur alveg niður við tekjur sem nema 923.076 kr. á ári.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. mgr. 48. gr., sbr. 70. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2013. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1229/2011, um (6.) breytingu á reglugerð nr. 213/1991, um greiðslur vasapeninga sjúkratryggðra.

Velferðarráðuneytinu, 21. desember 2012.

Guðbjartur Hannesson.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica