Utanríkisráðuneyti

290/2015

Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Eritreu. - Brottfallin

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja:

 

a)

ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem eru settar á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna,

 

b)

ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða

 

c)

ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunar­samtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, eftir því sem við á.



Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðsins og framkvæmdanefnda þess eða ályktanir Evrópu­sambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til fram­kvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóð­legra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1.

Ákvörðun ráðsins 2010/127/SSUÖ frá 1. mars 2010 um þvingunaraðgerðir gegn Eritreu, fylgiskjal 1.

 

1.1

Ákvörðun ráðsins 2010/414/SSUÖ frá 26. júlí 2010 um breytingu á ákvörðun 2010/127/CFSP um þvingunaraðgerðir gegn Eritreu, fylgiskjal 2.

 

1.2

Ákvörðun ráðsins 2012/632/SSUÖ frá 15. október 2012 um breytingu á ákvörðun 2010/127/CFSP um þvingunaraðgerðir gegn Eritreu, fylgiskjal 3.

2.

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 667/2010 frá 26. júlí 2010 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Eritreu, fylgiskjal 4.

 

2.1

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 942/2012 frá 15. október 2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 667/2010 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Eritreu, fylgiskjal 5.



Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um fram­kvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

3. gr.

Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

 

a)

ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins ("EB", "ESB", "Banda­lagsins" eða "sameiginlega markaðarins") eiga við um íslenska ríkisborgara, ein­stak­linga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,

 

b)

ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,

 

c)

tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,

 

d)

tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,

 

e)

tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,

 

f)

vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/ thvingunaradgerdir.



4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samn­ingar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viður­lög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi Erítreu nr. 300/2010, ásamt síðari breytingum, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 544/2011 um breyting á reglugerðum nr. 154/2009, 140/2009, 155/2009, 148/2009, 147/2009, 299/2010 og 300/2010.

Utanríkisráðuneytinu, 2. mars 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica