Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

877/2015

Reglugerð um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði. - Brottfallin

1. gr.

Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu, eftir því sem nánar er kveðið á um í 2. og 3. gr. Virðisaukaskattur og gistináttaskattur er ekki innifalinn í gjaldi samkvæmt 2. gr. Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 3. gr.

2. gr.

Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl:

1. Almennt gjald kr. 1.500
2. 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr. 700

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt:

1. Almennt gjald kr. 5.800
2. 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr. 2.900

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt:

1. Almennt gjald kr. 4.500
2. 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr. 2.250

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls.

Á gjald vegna gistingar leggst 11% virðisaukaskattur, auk gistináttaskatts sem er 111 kr. á hverja gistináttaeiningu með virðisaukaskatti.

3. gr.

Gjald fyrir aðra þjónustu:

1. Sturtugjald, eitt skipti kr. 500
2. Rafmagn fyrir húsbíl, hjólhýsi og fellihýsi, einn sólarhringur kr. 900
3. Afnot af þvottavél, eitt skipti kr. 500
4. Afnot af þurrkara, eitt skipti kr. 500
5. Gjald vegna almenns aðgangs að aðstöðu í skála, einn dagur kr. 500
6. Tjaldleiga, einn sólarhringur kr. 5.000
7. Sértæk þjónusta við ferðamenn skv. beiðni, sem felur í sér sérstakt vinnuframlag af hálfu starfsmanna þjóðgarðsins og akstur, gjald fyrir hverja klst. kr. 10.000
8. Kortabæklingur kr. 500 stk.
9. Aðrir bæklingar kr. 350 stk.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatna­jökuls­þjóðgarð, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökuls­þjóðgarði, nr. 130/2013.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 21. september 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Stefán Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica