Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

1196/2013

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 130/2013 um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði. - Brottfallin

1. gr.

2. gr. orðist svo:

Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl:

  1. Almennt gjald kr. 1.400
  2. 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr. 650

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir gistingu í skála A eina nótt:

  1. Almennt gjald kr. 5.500.
  2. 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr. 2.750.

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir gistingu í skála B eina nótt:

  1. Almennt gjald kr. 4.000.
  2. 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr. 2.000.

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatna­jökuls­þjóðgarð, öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 10. desember 2013.

F. h. r.

Stefán Thors.

Jón Geir Pétursson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica