Innanríkisráðuneyti

1127/2014

Reglugerð um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar í samevrópska loftrýminu.

1. gr.

Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að tryggja samræmi í afköstum, rekstrarsamhæfi og skilvirkni kerfa sem gegna hlutverki við veitingu kögunargagna, kerfishluta þeirra og tengdra verkferla innan evrópska netsins fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar.

2. gr.

Gildissvið.

Gildissvið reglugerðar þessarar tekur til flugs sem starfrækt er sem almenn flugumferð og í samræmi við blindflugsreglur innan EUR og AFI svæðis Alþjóðaflugmála­stofnunar­innar.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu 3. og 4. mgr. 7. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1207/2011 gilda um alla almenna flugumferð innan lofthelgi Íslands.

3. gr.

Lögbært yfirvald og framkvæmd.

Samgöngustofa telst lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari og hefur eftirlit með framkvæmd hennar.

4. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmda­stjórnarinnar (ESB) nr. 1207/2011 frá 22. nóvember 2011 um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar í samevrópska loftrýminu, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 236 frá 13. desember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4 frá 23. janúar 2014, bls. 503.

5. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. janúar 2015.

Innanríkisráðuneytinu, 18. desember 2014.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica