Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

662/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 717, 3. ágúst 2007, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2007/2008. - Brottfallin

1. gr.

Í stað orðanna "Síld (íslensk sumargotssíld) 150.000 lestir" í 1. mgr. 3. gr. komi:

Síld (íslensk sumargotssíld) 155.000 lestir.

2. gr.

4. mgr. 3. gr. orðist svo:

Veiðitímabil síldar er frá og með 1. september 2007 til 31. ágúst 2008.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum til að öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 3. júlí 2008.

Einar Kristinn Guðfinnsson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica