Sjávarútvegsráðuneyti

711/2004

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 362, 22. maí 2003, um verndun smáfisks við tog- og dragnótaveiðar fyrir Suðausturlandi. - Brottfallin

711/2004

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 362, 22. maí 2003,
um verndun smáfisks við tog- og dragnótaveiðar fyrir Suðausturlandi.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðist svo: Þrátt fyrir ákvæði 1. gr., er togbátum, sem eru 26 metrar að mestu lengd eða styttri, heimilt til 1. mars 2005 að stunda veiðar með fiskibotnvörpu á svæðinu, enda séu vörpur þeirra búnar leggglugga í samræmi við ákvæði 4. gr.


2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 1. september 2004 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 27. ágúst 2004.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Snorri Rúnar Pálmason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica