Sjávarútvegsráðuneyti

882/2003

Reglugerð um bann við síldveiðum í hringnót við Austurland og í Jökuldýpi. - Brottfallin

882/2003

REGLUGERÐ
um bann við síldveiðum í hringnót við Austurland og í Jökuldýpi.

1. gr.

Frá og með 27. nóvember 2003 eru allar síldveiðar í hringnót bannaðar á eftirgreindum svæðum:

A. Fyrir Austfjörðum, innan línu sem dregin er um eftirfarandi punkta:

1. 65° 20´00 N – 13° 42´00 V
2. 65° 20´00 N – 13° 00´00 V
3. 64° 14´16 N – 13° 00´00 V
4. 64° 04´09 N – 14° 25´09 V
5. 64° 15´00 N – 14° 55´00 V

Milli punkta 1 og 5 afmarkast svæðið af strandlengjunni.

B. Í Jökuldjúpi, innan línu sem dregin er um eftirfarandi punkta:

1. 64° 35´00 N – 24° 00´00 V
2. 64° 35´00 N – 23° 42´00 V
3. 64° 10´00 N – 23° 42´00 V
4. 64° 00´00 N – 24° 00´00 V
5. 64° 00´00 N – 24° 30´00 V
6. 64° 15´00 N – 24° 30´00 V
7. 64° 25´00 N – 24° 00´00 V


2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 25. nóvember 2003.

F. h. r.
Þorsteinn Geirsson.
Snorri Rúnar Pálmason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica