Sjávarútvegsráðuneyti

40/2002

Reglugerð um bann við rækjuveiðum í Langaneskanti. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 24. janúar 2002 eru allar rækjuveiðar óheimilar í Langaneskanti, á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta.

1. 67° 30'00 N – 16° 40'00 V
2. 67° 30'00 N – 14° 10'00 V
3. 66° 30'00 N – 12° 01'50 V
4. 66° 30'00 N – 12° 35'80 V
5. 66° 50'80 N – 13° 14'50 V
6. 67° 04'00 N – 14° 49'60 V
7. 67° 11'00 N – 16° 40'00 V



2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 21. janúar 2002.

Árni M. Mathiesen.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica