Umhverfisráðuneyti

56/2005

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 411/2004 um ýmis aðskotaefni í matvælum. - Brottfallin

1. gr.

Við viðauka I bætast eftirfarandi hámarksgildi fyrir PCB efni:

Aðskotaefni: Matvæli: Hámarksgildi:
PCB efni1 Fiskur og fiskvörur 0,2 mg/kg
Kjöt og kjötvörur 0,02 mg/kg



2. gr.
Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995 sbr. og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, nr. 7/1998. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.


Umhverfisráðuneytinu, 21. janúar 2005

F. h. r.
Magnús Jóhannesson.
Sigríður Auður Arnardóttir.


1 Af hámarksgildi PCB efna, mega einstök efni ekki fara yfir neðangreind mörk, miðað við 10% fitu í matvælunum. Sjá ennfremur skýringar við viðauka 2.
2, 4, 4' -triklórbifenyl(28) 0,06 mg/kg
2, 2', 5, 5' -tetraklórbifenyl(52) 0,01 mg/kg
2, 2', 4, 5, 5' -pentaklórbifenyl(101) 0,02 mg/kg
2, 3', 4, 4', 5 -pentaklórbifenyl(118) 0,02 mg/kg
2, 2', 3, 4, 4', 5' -hexaklórbifenyl(138) 0,02 mg/kg
2, 2', 4, 4', 5, 5' -hexaklórbifenyl(153) 0,02 mg/kg
2, 2', 3, 4, 4', 5, 5' -heptaklórbifenyl(180) 0,02 mg/kg
Aðrir PCB - ísómerar 0,06 mg/kg


Þetta vefsvæði byggir á Eplica