Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1045/2016

Reglugerð um (24.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1 frá 3. desember 2015 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir bífenasat, boskalíð, sýasófamíð, sýrómasín, dasómet, díþíókarbamöt, flúasífóp-P, mepanípýrím, metrafenón, píklóram, própamókarb, pýridaben, pýríófenón, súlfoxaflór, tebúkónasól, tebúfenpýrað og þíram í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 137/2016 frá 8. júlí 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52, frá 22. september 2016, bls. 72.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/46 frá 18. janúar 2016 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir oxadixýl og spínetóram í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2016 frá 3. júní 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 18. ágúst 2016, bls. 223.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/53 frá 19. janúar 2016 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir díetófenkarb, mesótríón, metósúlam og pírimífosmetýl í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2016 frá 3. júní 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 18. ágúst 2016, bls. 237.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/60 frá 19. janúar 2016 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir klórpýrifos í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2016 frá 3. júní 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 18. ágúst 2016, bls. 265.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/67 frá 19. janúar 2016 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir ametóktradín, klórþalóníl, dífenýlamín, flóníkamíð, flúasínam, flúoxastróbín, halauxifenmetýl, própamókarb, próþíókónasól, þíaklópríð og trífloxýstróbín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2016 frá 3. júní 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 18. ágúst 2016, bls. 282.
  6. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/71 frá 26. janúar 2016 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir 1-metýlsýklóprópen, flóníkamíð, flútríafól, indólýlediksýru, indólýlsmjörsýru, petoxamíð, pírimíkarb, próþíókónasól og teflúbensúrón í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 110/2016 frá 3. júní 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 18. ágúst 2016, bls. 347.
  7. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/75 frá 21. janúar 2016 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir fosetýl í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2016 frá 3. júní 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 18. ágúst 2016, bls. 331.
  8. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/143 frá 18. janúar 2016 um breytingu á IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar COS-OGA, serevísan, kalsíumhýdroxíð, lesitín, víðibörk, edik, frúktósa, pepínómósaíkveiru af stofni CH2, einangur 1906, Verticillium albo-atrum, einangur WCS850 og Bacillus amyloliquefaciens subsp. plantarum, stofn D747. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 109/2016 frá 3. júní 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 18. ágúst 2016, bls. 344.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. nóvember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica