Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

492/2012

Reglugerð um úthlutun á opnum tollkvótum á hreindýrakjöti. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðauka IV A, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Magntollur

kg

kr./kg

Tollskrárnr.

0208.9007

Beinlaust hreindýrakjöt, fryst

01.07.12 - 30.06.13

ótilgreint

878

Hreindýrakjöt með beini, fryst:

0208.9008

Skrokkar og hálfir skrokkar

01.07.12 - 30.06.13

ótilgreint

0

0208.9009

Annað

01.07.12 - 30.06.13

ótilgreint

878

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2013.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. maí 2012.

F. h. r.

Ólafur Friðriksson.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica