Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

640/2012

Reglugerð um stöðvun veiða á úthafsrækju á fiskveiðiárinu 2011/2012. - Brottfallin

1. gr.

Með vísan til þess að afli í úthafsrækju er á yfirstandandi fiskveiðiári kominn umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar þá eru allar veiðar á úthafsrækju í fiskveiðilandhelgi Íslands óheimilar frá og með 1. ágúst 2012 til og með 31. ágúst 2012.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, og öðlast þegar gildi.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. júlí 2012.

F. h. r.

Kristján Freyr Helgason. 

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica