Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

943/2011

Reglugerð um sérstök línu- og netasvæði. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 1. nóvember 2011 til og með 31. desember 2011, eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á svæði suður af Reykjanesskaga sem markast af eftirfarandi punktum:

1.  63°49,30´ N - 021°39,10´ V
2.  63°30,00´ N - 021°39,00´ V
3.  63°40,00´ N - 022°32,00´ V
4.  63°48,70´ N - 022°32,00´ V
5.  63°49,80´ N - 022°04,20´ V

2. gr.

Frá og með 1. nóvember 2011 til og með 30. apríl 2012, eru allar veiðar með fiski­botnvörpu bannaðar á svæði út af Faxaflóa, sem markast af eftirfarandi punktum:

1.  64°20,00´ N - 023°08,00´ V
2.  64°04,90´ N - 022°43,60´ V
3.  64°02,00´ N - 022°44,40´ V
4.  64°02,00´ N - 023°42,00´ V
5.  64°20,00´ N - 023°42,00´ V

3. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 3. október 2011.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Indriði B. Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica