Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

462/2011

Reglugerð um veiðar úr úthafskarfastofnum 2011. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa vestan 22. gráðu vestlægrar lengdar úr úthafskarfastofnum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafs­fiskveiði­nefndarinnar (NEAFC), utan þeirra svæða sem falla undir fiskveiðilögsögu samningsaðila og innan fiskveiðilandhelgi Grænlands, í samræmi við samning þjóðanna þess efnis. Ennfremur til úthafskarfaveiða fiskiskipa, sem leyfi hafa til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands, er þau stunda veiðar á úthafskarfa með flotvörpu utan línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 64°17´N - 30°23´V (við miðlínu milli Íslands og Grænlands).
  2. 64°45´N - 28°30´V
  3. 62°50´N - 25°45´V
  4. 61°55´N - 26°45´V
  5. 61°00´N - 26°30´V
  6. 60°48´N - 26°51´V (við lögsögumörk á Reykjaneshrygg).

Þá tekur reglugerðin til veiða á úthafskarfa sem veiddur er á svæðum 1f, 2g, 2h, 2j og 3k á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO. Á árinu 2011 eru veiðar á úthafskarfa óheimilar á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs fiskveiði­stofnunarinnar, NAFO.

2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á úthafskarfa skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á úthafskarfa í flotvörpu, sem hafa aflamark í úthafskarfa, sbr. 3. og 4. gr.

3. gr.

Á árinu 2011 er þeim íslensku fiskiskipum, sem leyfi fá til veiða á úthafskarfa með flotvörpu, sbr. 2. gr. heimilt að veiða alls 11.788 lestir af úthafskarfa. Veiðar á úthafskarfa eru heimilar frá og með 10. maí og eru einungis leyfðar innan svæðis sem markast af eftirfarandi punktum:

  1. 64°45´N - 28°30´V
  2. 62°50´N - 25°45´V
  3. 61°55´N - 26°45´V
  4. 61°00´N - 26°30´V
  5. 59°00´N - 30°00´V
  6. 59°00´N - 34°00´V
  7. 61°30´N - 34°00´V
  8. 62°50´N - 36°00´V
  9. 64°45´N - 28°30´V

Stundi skip veiðar með flotvörpu á svæði, sem skilgreint er í 1. mgr. þessarar greinar, reiknast allur karfaafli skipsins til aflamarks skipsins í úthafskarfa samkvæmt reglugerð þessari.

Á grundvelli aflahlutdeildar í úthafskarfa skal Fiskistofa úthluta hverju skipi aflamarki, eins og skilgreint er í 1. mgr. þessarar greinar, að teknu tilliti til niðurstöðu vegna veiða ársins 2010.

4. gr.

Heimilt er að framselja aflahlutdeild og aflamark milli íslenskra fiskiskipa, samkvæmt þeim reglum, sem almennt gilda um framsal aflahlutdeildar og aflamarks samkvæmt lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Ákvæði 11. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, gilda ekki um aflamark sem úthlutað er í úthafskarfa samkvæmt þessari reglugerð. Þó er heimilt að flytja allt að 5% af aflamarki úthafskarfa frá einu fiskveiðiári yfir á það næsta. Þá er heimilt að veiða 5% umfram aflamark í úthafskarfa, enda dregst sá umframafli frá við úthlutun aflamarks næsta fiskveiðiárs á eftir.

5. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á samningssvæði NEAFC sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga, sbr. 1. mgr., bilar, skal gert við hann við komu í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu skipsins á 6 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar. Einnig skulu tilkynningar skv. 6. gr. innihalda upplýsingar um staðsetningu skipsins.

6. gr.

Við úthafskarfaveiðar innan fiskveiðilandhelgi Íslands, sbr. 2. málslið 1. gr., við úthafskarfaveiðar í fiskveiðilögsögu Grænlands og eftir því sem við á á alþjóðlegu hafsvæði, skal senda eftirgreindar tilkynningar til Eftirlitsstöðvarinnar:

Komutilkynning: Skylt er skipstjóra skips að tilkynna til Eftirlitsstöðvarinnar með ekki meira en 12 klukkustunda og að minnsta kosti 2 klukkustunda fyrirvara að það fari inn á veiðisvæði sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. tilkynningarinnar komi fram eftirfarandi upplýsingar:

  1. Kóði viðtakanda: "ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
  2. Raðnúmer skeytisins.
  3. Kóði fyrir tegund skeytisins: "COE" sem komutilkynning.
  4. Kóði fyrir það deilisvæði sem fara á inn á: "RCA" fyrir úthafskarfasvæðið skv. 1. mgr. 3. gr.
  5. Kóði fyrir það fiskveiðistjórnunarsvæði eða lögsögu sem verið er að fara inn á: "NEA" fyrir samningssvæði NEAFC, "ISL" fyrir íslenska lögsögu eða "GRL" fyrir lögsögu Grænlands.
  6. Kallmerki skipsins.
  7. Nafn skipsins.
  8. Skipaskrárnúmer.
  9. Staðsetning skipsins í gráðum og heilum mínútum.
  10. Áætlað heildaraflamagn um borð í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
  11. Dagsetning og tími.

Aflatilkynning: Tilkynna skal eftirlitsstöðinni daglega um heildarafla. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:

  1. Kóði viðtakanda: "ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
  2. Raðnúmer skeytisins.
  3. Kóði fyrir tegund skeytisins: "CAT" sem aflatilkynning.
  4. Kóði fyrir það deilisvæði sem aflatilkynningin á við: "RCA" fyrir úthafskarfasvæði skv. 1. mgr. 3. gr.
  5. Kóði fyrir það fiskveiðistjórnunarsvæði eða lögsögu sem aflinn er veiddur á: "NEA" fyrir samningssvæði NEAFC, "ISL" fyrir íslenska lögsögu eða "GRL" fyrir lögsögu Grænlands.
  6. Kallmerki skipsins.
  7. Afli frá síðustu aflatilkynningu í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
  8. Fjöldi veiðidaga frá upphafi veiða en frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send.
  9. Dagsetning og tími.

Lokatilkynning: Þegar veiðiskip yfirgefur svæðið sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. skal það tilkynnt Eftirlitsstöðinni með ekki meiri en 8 klukkustunda og að minnsta kosti 2 klukkustunda fyrirvara.

  1. Kóði viðtakanda: "ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
  2. Raðnúmer skeytisins.
  3. Kóði fyrir tegund skeytisins: "COX" sem lokatilkynning.
  4. Kóði fyrir það deilisvæði sem lokatilkynningin á við: "RCA" fyrir úthafskarfasvæði skv. 1. mgr. 3. gr.
  5. Kóði fyrir það fiskveiðistjórnunarsvæði eða lögsögu sem verið er að fara útaf: "NEA" fyrir samningssvæði, "ISL" fyrir íslenska lögsögu eða "GRL" fyrir lögsögu Grænlands.
  6. Kallmerki skipsins.
  7. Afli frá síðustu aflatilkynningu í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
  8. Fjöldi veiðidaga frá upphafi veiða en frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send.
  9. Löndunarhöfn (áætlaður tími og dagsetning þar).
  10. Dagsetning og tími.

7. gr.

Tilkynningar skv. 6. gr. skulu sendar með þeim hætti sem lýst er í viðaukum I og II við reglugerð nr. 1221/2008 með síðari breytingum, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

Um tilkynningar við úthafskarfaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar nr. 1221/2008 með síðari breytingum, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

8. gr.

Stundi skip úthafskarfaveiðar og almennar togveiðar í lögsögu Íslands í sömu veiðiferð skal halda úthafskarfa aðgreindum frá öðrum afla um borð í veiðiskipi og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun.

Er afli reiknast til aflamarks skal miðað við 94% nýtingu sé úthafskarfa landað slægðum með haus, 59% nýtingu sé úthafskarfa landað hausskornum, 30% nýtingu sé honum landað flökuðum með roði og beinum, 27% nýtingu sé honum landað flökuðum, roðlausum með beinum.

Þegar úthafskarfi er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,86.

9. gr.

Skipstjóri skal, svo fljótt sem verða má eftir að veiðum lýkur og eigi síðar en 4 klukkustundum eftir að komið er til hafnar, senda Fiskistofu skýrslu um áætlaðan úthafskarfaafla í viðkomandi veiðiferð á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í skýrslunni skal koma fram úthafskarfaafli skipsins miðað við afla upp úr sjó sundurliðaður eftir afla innan fiskveiðilandhelgi Íslands, afla á alþjóðlegu hafsvæði og afla innan fiskveiðilandhelgi Grænlands.

10. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar með síðari breytingum og lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.

11. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 3. maí 2011.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica