Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

157/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 889/2010 um loðnuveiðar erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2011. - Brottfallin

1. gr.

Í stað: "16.250" í 2. mgr. 3. gr., sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 52, 25. janúar 2011, komi: 19.500 lestir.

2. gr.

Í stað: "25.676" í 3. mgr. 3. gr., sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 52, 25. janúar 2011, komi: 23.000 lestir.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breyt­ingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. febrúar 2011.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Indriði Björn Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica