Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

678/2010

Reglugerð um bann við dragnótaveiðum. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 1. september 2010 til og með 31. ágúst 2015 eru allar dragnótaveiðar bannaðar á eftirgreindum svæðum:

  1. Húnafjörður innan svæðis sem markast af línum sem dregnar eru á milli Sölvabakka 65°42,5´N - 020°16,5´V, norðurenda Fáskrúðsskers 65°42,5´N - 020°42,8´V og þaðan í 180° réttvísandi til lands.

  2. Skagafjörður innan svæðis sem markast af línu sem dregin er á milli Ásnefs 65°56,5´N -019°53,0´V og Þórðarhöfða 65°58,4´N - 019°29,7´V. Þrátt fyrir ákvæði 1. ml. eru veiðar heimilar að línu sem dregin er á milli 65°52´N og 19°42,8´V yfir Ingveldarhólma í Grafarós 65°53,4´N og 19°23,9´V frá og með 1. september 2010 til og með 31. desember 2010.

  3. Hrútafjörður - Miðfjörður innan svæðis sem markast af línu sem dregin er þvert yfir utanverðan Hrútafjörð og Miðfjörð eftir 65°26´N. Þrátt fyrir ákvæði 1. ml. er Miðfjörður er opinn fyrir veiðum með dragnót frá og með 1. september 2010 til og með 31. desember 2010 utan línu sem dregin er eftir 65°23´N.

  4. Húnaflói - veiðar eru bannaðar skipum lengri en 22 m að mestu lengd innan línu sem dregin er eftir 66°00´N þvert yfir Húnaflóa. Þrátt fyrir ákvæði 1. ml. eru skipum lengri en 22 metrar sem stundað hafa veiðar með dragnót í Húnaflóa á síðastliðnum þremur árum heimilar veiðar innan fyrrgreindrar línu.

  5. Seyðisfjörður - Loðmundarfjörður innan svæðis sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra fjögurra punkta:
    65°21,672´N - 013°43,330´V
    65°19,954´N - 013°43,330´V
    65°18,0´N    - 013°34,500´V
    65°16,195´N - 013°34,500´V

  6. Önundarfjörður innan svæðis sem markast af línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta: 66°03,140´N - 023°38,164´V og 66°33,900´N - 023°33,070´V. Þrátt fyrir ákvæði 1. ml. eru veiðar heimilar að línu sem dregin er er milli eftirgreindra punkta: 66°01,9´N - 023°32,8´V og 66°03,440´N - 023°31,610´V frá og með 1. september 2010 til og með 31. desember 2010.

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma er felld úr gildi reglugerð nr. 475/2010 um bann við dragnótaveiðum, með síðari breytingum.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 31. ágúst 2010.

Jón Bjarnason.

Hrefna Gísladóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica