Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

540/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 742, 24. júlí 2008, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2008/2009. - Brottfallin

1. gr.

Í stað orðanna "Síld (íslensk sumargotssíld) 150.000 lestir" í 1. mgr. 3. gr. komi:
Síld (íslensk sumargotssíld) 155.000 lestir.

2. gr.

4. mgr. 3. gr. orðist svo:
Veiðitímabil síldar er frá og með 1. september 2008 til 31. ágúst 2009.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum til að öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 23. júní 2009.

F. h. r.

Steinar Ingi Matthíasson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica