966/2013
Reglugerð um breytingu á reglugerð um gjöld og þóknanir sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á, nr. 118/2009, með áorðnum breytingum. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Við bætist nýr c-liður 2. gr. sem orðast svo:
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 494/2012 frá 11. júní 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 593/2007 um þóknanir og gjöld sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 90/2013 frá 3. maí 2013. Reglugerðin er jafnframt birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, 16. maí 2013, bls. 346.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 29. október 2013.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Ragnhildur Hjaltadóttir.