Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Nú eru þær aflaheimildir sem ráðstafað er til stuðnings byggðarlögum á fiskveiðiárinu 2025/2026 auknar eftir að reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga skv. 2. gr. og skal þá skipta viðbótinni milli byggðarlaga í hlutfalli við þann hlut sem hvert þeirra fékk samkvæmt þeirri grein. Viðbótin skal vera í óslægðum afla í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, gullkarfa, keilu og löngu. Ákvæði 2. gr. gilda að öðru leyti ekki um viðbótina. Ráðuneytið tilkynnir sveitarstjórnum um viðbótina, sbr. 3. gr. Viðbótin skal flytjast yfir á fiskveiðiárið 2026/2027 og kemur til úthlutunar til fiskiskipa með því aflamarki sem kemur í hlut viðkomandi byggðarlags á fiskveiðiárinu 2026/2027, sbr. 9. mgr. 10. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.
Reglugerð þessi sem sett er skv. 4. mgr. 10. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 26. ágúst 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
B deild - Útgáfudagur: 27. ágúst 2026