1333/2025
Reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2025/2026.
1. gr. Heildaraflaheimildir.
Á fiskveiðiárinu 2025/2026 skal ráðherra úthluta og ráðstafa aflaheimildum af botnfiski til stuðnings byggðarlögum, sbr. reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, þannig:
- Til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.
- Til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í byggðarlögunum. Heimilt er að ráðstafa aflaheimildum samkvæmt þessum lið til allt að þriggja ára í senn.
Byggðarlög, skv. 1. mgr. eru byggðakjarnar sem liggja að sjó og eru háðir veiðum og/eða vinnslu á sjávarafla. Minni byggðarlög teljast byggðarlög með færri íbúum en 2.000, miðað við 1. janúar 2025.
2. gr. Útreikningur á aflaheimildum til byggðarlaga.
Við útreikning á aflaheimildum sem koma í hlut hvers byggðarlags skal leggja til grundvallar eftirfarandi forsendur:
-
Ráðuneytið skal reikna út aflaheimildir sem koma í hlut hvers byggðarlags þar sem íbúar eru færri en 2.000 þann 1. janúar 2025. Við þann útreikning skal gefa hverju byggðarlagi punkta sem fundnir eru þannig:
- Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskafli fiskiskipa hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2015/2016 að telja til fiskveiðiársins 2024/2025, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2025, skal gefa tvo punkta.
- Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskaflaheimildir fiskiskipa frá byggðarlagi hafa mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2015/2016 að telja til fiskveiðiársins 2025/2026, sem hlutfall af heildarbotnfiskaflaheimildum allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2025, skal gefa tvo punkta.
- Fyrir hvert 0,1% sem vinnsla botnfiskafla í byggðarlagi hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2015/2016 að telja til fiskveiðiársins 2024/2025, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla sem unninn hefur verið í öllum byggðarlögum með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2025, skal gefa fjóra punkta.
Ráðuneytið metur hvaða viðmiðunarár er hagstæðast hverju byggðarlagi til útreiknings aflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð og leggur þar til grundvallar tölulegar upplýsingar frá Fiskistofu. Sama fiskveiðiárið skal ávallt lagt til grundvallar við mat á öllum þáttum fyrir hvert byggðarlag, sbr. 1.-3. tl. 1. mgr., og hafi aukning orðið í einum þætti milli viðmiðunarára kemur hún til frádráttar. Samanlagðir punktar vegna samdráttar í einstökum byggðarlögum ráða því hversu mikið af aflaheimildum kemur í þeirra hlut samkvæmt þessari grein en skulu þó að lágmarki vera 15 þorskígildistonn og að hámarki 275 þorskígildistonn.
Komi í ljós veruleg breyting á reiknuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið kanna, hvort raunverulegar breytingar hafi orðið á útgerð eða botnfiskvinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Hafi svo ekki orðið er heimilt að breyta úthlutun aflaheimilda samkvæmt þessari grein til viðkomandi byggðarlaga. Úthlutaðar aflaheimildir til viðkomandi byggðarlaga skulu þó ekki vera hærri en úthlutaðar aflaheimildir á fiskveiðiárinu 2024/2025 að teknu tilliti til breytinga á ráðstöfun skv. 1. gr. reglugerðar um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og að teknu tilliti til nýtingar úthlutaðra aflaheimilda í viðkomandi byggðarlagi á fiskveiðiárinu 2024/2025.
- Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á rækju, sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildistonn eða minni frá fiskveiðiárinu 2015/2016, 2016/2017, 2017/2018, 2018/2019, 2019/2020, 2020/2021, 2021/2022, 2022/2023 eða 2023/2024 að telja til fiskveiðiársins 2024/2025 koma aflaheimildir, sem nema 50 þorskígildistonnum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildistonn en minni en 1.500 þorskígildistonn í byggðarlagi koma 100 þorskígildistonn í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildistonn eða meiri í byggðarlagi koma 150 þorskígildistonn í þess hlut.
- Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á skel (hörpudisk og/eða kúfskel), sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildistonn eða minni frá fiskveiðiárinu 2015/2016, 2016/2017, 2017/2018, 2018/2019, 2019/2020, 2020/2021, 2021/2022, 2022/2023 eða 2023/2024 að telja til fiskveiðiársins 2024/2025 koma aflaheimildir, sem nema 50 þorskígildistonnum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildistonn en minni en 1.500 þorskígildistonn í byggðarlagi koma 100 þorskígildistonn í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildistonn eða meiri í byggðarlagi koma 150 þorskígildistonn í þess hlut.
- Nú sýna útreikningar að aflaheimildir koma einnig í hlut tiltekins byggðarlags samkvæmt A-lið þessarar greinar og skal þá einungis úthluta aflaheimildum til byggðarlags á grundvelli þess ákvæðis sem meira gefur, þ.e. A-liðar eða samtölu B- og C-liðar.
- Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga samkvæmt A-lið hér að framan, skal hlutur byggðarlaga með færri íbúa en 400 og sem úthlutað var aflaheimildum á fiskveiðiárinu 2024/2025, og eiga rétt til úthlutunar fiskveiðiárið 2025/2026, leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 15 þorskígildistonn, milli fiskveiðiáranna 2024/2025 og 2025/2026. Þessi takmörkun á lækkun á þó ekki við þegar beitt er heimild til leiðréttingar skv. 3. mgr. A-liðar 1. mgr. 2. gr.
- Þrátt fyrir ákvæði A-liðar skal úthlutun byggðakvóta til þeirra byggðarlaga sem fengið hafa úthlutað aflaheimildum frá Byggðastofnun skv. 10. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, ekki vera lægri en nam úthlutun byggðakvóta fiskveiðiársins 2024/2025 að teknu tilliti til breytinga á ráðstöfun skv. 1. gr. reglugerðar um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.
3. gr. Tilkynningar um byggðakvóta til sveitarstjórna.
Ráðuneytið tilkynnir sveitarstjórnum hversu miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags sem undir þær falla.
4. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi sem sett er, skv. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 9. desember 2025.
B deild - Útgáfudagur: 11. desember 2025