Dómsmálaráðuneyti

690/2021

Reglugerð um einkennisfatnað lögreglunnar.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um einkennisfatnað og merkingar lögreglunnar.

 

2. gr.

Skýringar.

Með lögreglumerki í reglugerð þessari er átt við íslenska lögreglumerkið og önnur einkenni lögregl­unnar, sbr. reglugerð um einkenni og merki lögreglunnar.

Með einkennisfatnaði lögreglu er átt við þann fatnað sem ríkis­lögreglustjóri hefur samþykkt til notkunar hjá lögreglu.

Með lögreglumenn er átt við einstaklinga sem lokið hafa prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, að meðtöldu starfsnámi á vegum lögreglunnar, sbr. ákvæði laga um háskóla.

 

II. KAFLI

Einkennisfatnaður og búnaður lögreglu.

3. gr.

Notkun einkennisfatnaðar.

Öllum öðrum en lögreglu er óheimilt að nota einkenni, merki og/eða einkennisfatnað lögreglu opinberlega eða í ólögmætum tilgangi, eða einkenni/merki eða fatnað sem er svo áþekkur þeim er lögregla notar, að hætta er á að á verði villst. Brot á þessari reglugerð geta varðað refsingu, sbr. 117. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Allir þeir sem taldir eru upp í 10. og 28. gr. lögreglulaga eiga kost á að fá úthlutað einkennis­fatnaði. Við úthlutun einkennisfatnaðar lögreglu skal taka tillit til þess að fatnaður henti viðkomandi lögreglumanni.

Öllum lögreglumönnum sem skipaðir eru til starfa samkvæmt 4. mgr. 28. gr. lögreglulaga eða eru ráðnir til afleysingar samkvæmt 5. mgr. 28. gr. lögreglulaga eða eru ráðnir sem héraðslögreglu­menn samkvæmt 10. gr. lögreglulaga er skylt að nota úthlutaðan einkennisfatnað við störf, sbr. þó 7. og 8. gr. reglugerðar þessarar.

Ríkislögreglustjóri, lögreglustjórar, aðstoðarlögreglustjórar og staðgenglar lögreglustjóra fá einkennis­fatnað í samræmi við reglugerð þessa.

 

4. gr.

Lögreglunúmer.

Lögreglumenn og lögreglunemar fá úthlutað fjögurra stafa lögreglunúmeri. Ríkislögreglustjóri annast úthlutun lögreglunúmera.

Fyrstu tveir stafir númersins ráðast af útskriftarári úr lögreglunámi en tveir síðari stafir númers­ins segja til um starfsaldur þeirra hjá lögreglu sem útskrifast á sama tíma. Ef tveir eða fleiri eru með jafnan starfsaldur skal sá sem eldri er fá lægra númer.

Númerin skulu vera ísaumuð gylltum þræði í svartan efnisbút, sem er 25 x 47 mm í þvermál. Númerin eru 12 mm á hæð og 37 mm á lengd (4 tölustafir). Letrið er gyllt og saumað með blokk­skrift. Lögreglunúmer er saumað á smeyga á fatnaði lögreglumanna. Lögreglunúmer á ekki að nota á jakka 1.

Afleysingamenn og héraðslögreglumenn fá úthlutað svokölluðu "H-númeri" sem byrjar á bók­stafnum H og er í hlaupandi númeraröð (H001-H9999), sem raðað er eftir skráðum byrjunardegi. Ef tveir eða fleiri eru með jafnan starfsaldur skal sá sem eldri er fá lægra númer. Afleysingamenn, sem ekki eru lögreglumenn eða héraðslögreglumenn, bera ekki lögreglunúmer á einkennisfatnaði sínum.

Aldrei má úthluta lögreglunúmeri sem annar maður hefur borið. Ríkislögreglustjóri getur sett nánari reglur um lögreglunúmer, þ.m.t. reglur um gerð og notkun lögreglunúmera nema í lögreglu­fræðum, svokölluð "N-númer".

 

5. gr.

Almennur lögreglufatnaður.

Almennur einkennisfatnaður lögreglu er svartur að aðallit og samanstendur af einkennishúfu, jakka, samfestingi, peysu, skyrtu, buxum, bindi, skóm, hönskum, bol og regnfötum. Fatnaðurinn er með axlarsprotum sem á eru dregnir smeygar með viðeigandi stöðueinkennum. Lögreglumerki eru á báðum ermum. Á baki og hægra megin á brjósti er merkið "Lögreglan" en vinstra megin á brjósti merkið "Police". Ríkislögreglustjóra er heimilt í sérstökum tilvikum að merkja einnig með merkinu "Police" á baki. Endurskinsmerkingar eru heimilar.

Notkun annarra merkja eða tákna á einkennisfatnað eða búnað lögreglu er óheimil, nema sem heimiluð er sérstaklega skv. reglugerð þessari eða reglna settra af ríkislögreglustjóra.

 

6. gr.

Lögreglustjórafatnaður.

Ríkislögreglustjóri, aðstoðarríkislögreglustjórar, lögreglustjórar, aðstoðarlögreglustjórar og stað­genglar lögreglustjóra fá úthlutað einkennisfatnaði og klæðast einkennisfatnaði. Lögreglustjórum er heimilt að klæðast öllum almennum lögreglufatnaði, en skulu þá bera viðeigandi einkenni lög­reglu­stjóra.

Ofangreindum er ekki skylt að klæðast einkennisfatnaði við dagleg störf en skulu að jafnaði klæðast einkennisfatnaði við opinber eða hátíðleg tækifæri, sérstakar móttökur og önnur viðeigandi tæki­færi.

Lögreglustjórum er heimilt að fá greiddan fatakostnað sem samsvarar allt að 100.000 krónum á ári.

 

7. gr.

Óeinkennisklæddir lögreglumenn.

Lögreglustjóri getur heimilað lögreglumönnum að starfa óeinkennisklæddir við sérstök lögreglu­verkefni þar sem löggæsluþörf kallar á slíkt. Við slík störf er lögreglumönnum heimilt að ein­kenna sig með því að framvísa lögregluskilríkjum.

Ákveði lögreglustjóri að einstakir lögreglumenn gangi í borgaralegum fatnaði, enda sé það óhjá­kvæmilegt starfsins vegna, er heimilt að greiða óeinkennisklæddum lögreglumönnum fata­kostnað sem samsvarar allt að 100.000 krónum á ári. Álitaefnum um hvort þörf sé á slíku í einstökum tilfellum getur lögreglustjóri skotið til ríkislögreglustjóra til ákvörðunar.

Komi óeinkennisklæddir lögreglumenn eða annað starfsfólk lögreglu á vettvang og þurfa að ein­kenna sig vegna starfa sinna, er þeim heimilt að einkenna sig, s.s. með því að klæðast einkennis­vesti/endurskinsvesti yfir fatnað eða með því að setja/festa merki almannavarna, lögreglu eða héraðs­saksóknara á ermar svarts óeinkennds jakka. Lögreglumönnum er jafnframt heimilt að nota til þess gerðan hlífðarfatnað, s.s. varnar- og búnaðarvesti eða samfestinga merkta lögreglu. Lögreglu­­mönnum er einnig heimilt í slíkum aðstæðum að einkenna sig með húfu 3. Notkun skal háð heimild viðkomandi lögreglustjóra.

 

8. gr.

Sérstakur lögreglufatnaður.

Heimiluð er notkun sérstaks lögreglufatnaðar sem er vinnufatnaður einstakra starfseininga innan lögreglunnar, s.s. einkennisfatnaður bifhjólamanna, fatnaður tæknideildar og öryggisfatnaður, þ.m.t. sér­sveitar.

 

9. gr.

Hátíðarfatnaður.

Hátíðarfatnaður lögreglunnar er svartur síður jakki og svartar buxur, hvít skyrta, svart bindi, svartir sokkar, svartir lágir skór og hvítir hanskar. Einkennishúfa er með hvítum kolli og merki lögreglunnar úr málmi. Svartur einhnepptur regnfrakki er með einkennistölum. Ekki er heimilt að nota annan fatnað við hátíðarfatnaðinn eða að nota hátíðarfatnaðinn með öðrum fatnaði.

Lögreglumönnum og starfsfólki lögreglu sem fær úthlutað hátíðarfatnaði, er heimilt að eiga slíkan fatnað þótt látið sé af störfum. Fyrrverandi lögreglumönnum er ekki heimil notkun slíks fatn­aðar nema þegar um er að ræða viðburði tengda lögreglu, fyrrum starfi viðkomandi og sérstaka við­burði. Við andlát viðkomandi skal dánarbú afhenda fatnaðinn til viðkomandi lögreglustjóra eða ríkis­lögreglu­stjóra.

Þrátt fyrir 1. mgr. er yfirmönnum lögreglu, þ.e. lögreglustjórum, aðstoðarlögreglustjórum, stað­genglum lögreglustjóra, yfirlögregluþjónum og aðstoðaryfirlögregluþjónum heimilt að nota hvíta einkennisskyrtu með almennum lögreglufatnaði.

 

10. gr.

Útvegun einkennisfatnaðar o.fl.

Lögreglustjórar útvega einkennisfatnað og annan búnað fyrir lögreglumenn skv. þörfum. Þeim ber að halda skrá yfir einkennisfatnað, tækjabelti og annan tilheyrandi búnað sem þeir afhenda. Ekki er heimilt að nota annan fatnað eða búnað en þann sem ríkislögreglustjóri hefur samþykkt til notk­unar.

Lögreglustjórum ber að haga viðskiptum með einkennisfatnað og annan búnað samkvæmt þessari reglugerð í samræmi við fyrirmæli ríkislögreglustjóra.

Lögreglustjórar bera ábyrgð á því að lögreglumenn hirði vel um einkennisfatnaðinn og fái hann þrifinn eftir þörfum.

Eðlileg þrif einkennisfatnaðar lögreglustjóra og lögreglumanna eru greidd af viðkomandi aðila. Fatnaður skal hreinsaður eftir þörfum samkvæmt ákvörðun lögreglustjóra. Meiriháttar tjón á einkennis­fatnaði sem rekja má til starfsins skal bætt með nýjum einkennisfatnaði.

 

11. gr.

Eignarheimild og skil á einkennisfatnaði.

Einkennisfatnaði, ásamt tilheyrandi einkennum og búnaði sem lögreglumaður hefur fengið afhent ber að skila til viðkomandi lögreglustjóra við starfslok. Einkennisfatnaður og búnaður eru eign lögreglunnar.

 

12. gr.

Notkun einkennisfatnaðar utan lögreglustarfs.

Lögreglumönnum og öðru starfsfólki lögreglu er óheimilt að nota einkennisfatnaðinn utan lög­reglu­starfs, nema með heimild lögreglustjóra. Ef um er að ræða notkun erlendis skal óska heim­ildar ríkislögreglustjóra.

Lögreglumönnum og starfsfólki lögreglu er ekki heimilt að afhenda einkennisfatnað eða lög­reglu­búnað utanaðkomandi aðila nema með sérstakri heimild ríkislögreglustjóra eða lögreglustjóra, sbr. 13. gr. reglugerðar þessarar.

 

13. gr.

Lán eða leiga lögreglufatnaðar og búnaðar.

Lögreglustjórum er heimilt við sérstök undantekningartilvik að lána einkennisfatnað og lög­reglu­búnað. Heimilt er jafnframt að lána eða leigja búnað Lögregluminjasafns Íslands skv. reglum þessum. Hafa skal samráð við embætti ríkislögreglustjóra eða það lögregluembætti sem á einkennis­fatnaðinn eða lögreglubúnaðinn.

Lögreglustjórum er heimilt að samþykkja útleigu á lögreglufatnaði eða búnaði til kvikmynda­fyrirtækja vegna notkunar við gerð kvikmynda. Heimild til útláns skal stíluð á viðkomandi kvikmyndagerðarfyrirtæki samkvæmt leigusamningi sem inniheldur m.a. skilyrði um tilhlýðilega notkun, örugga varðveislu og skilatíma, sem lögreglustjóri staðfestir.

Notkun á lögreglufatnaði eða búnaði skal takmörkuð við viðkomandi kvikmynd og meðan á tökum stendur. Óheimilt er að nota lögreglufatnaðinn við aðstæður sem teljast augljóslega vanvirð­andi fyrir lögreglu.

Tilkynna skal hlutaðeigandi lögreglustjóra um allar kvikmyndatökur utandyra með hæfilegum fyrir­vara.

Óheimilt er að samþykkja lán eða leigu á lögreglufatnaði eða búnaði vegna auglýsinga nema um sé að ræða sérstakar forvarnarauglýsingar.

Ökutæki lögreglu skulu ekki lánuð eða leigð en lögreglustjórum er heimilt að leggja til ökutæki með áhöfn vegna kvikmyndagerðar.

Lán eða leiga ökutækja lögreglu vegna auglýsingagerðar er óheimil nema um sé að ræða sér­stakar forvarnarauglýsingar.

Óheimilt er að lána eða leigja vopn eða önnur valdbeitingartæki, en útlán annars lögreglu­búnaðar hvort heldur er vegna kvikmyndagerðar, auglýsingagerðar eða annarra tilfella, er háð mati lög­reglu­stjóra, eftir beiðni hverju sinni.

 

III. KAFLI

Einkennisfatnaður í starfsnámi á vegum
Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu.

14. gr.

Lögreglunemar.

Fatnaður lögreglunema í starfsþjálfun skal vera almennur einkennisfatnaður og búnaður lög­reglu­manna. Mennta- og starfsþróunarsetrið ber kostnað af fatnaði og búnaði lögreglunema sem þeim er úthlutað samkvæmt reglugerð þessari.

Heimilt er að lögreglunemar noti annan nauðsynlegan fatnað í starfsnámi. Fatnaður má vera merktur Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu, til notkunar fyrir bæði nemendur og starfsfólk.

 

15. gr.

Úthlutun og skil.

Lögreglunemum er einungis heimilt að nota fatnað þann og búnað sem þeir hafa fengið úthlutað samkvæmt reglugerð þessari við starfsnám Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu og við lög­reglu­störf ef því er að skipta.

Ef lögreglunemi hættir námi eða nær ekki tilskildum árangri í prófum námsannar, ber honum að skila þeim fatnaði og búnaði sem hann hefur fengið úthlutað þegar í stað. Hið sama á við ef við­kom­andi fær ekki starf sem lögreglumaður að loknu námi.

 

IV. KAFLI

Nánari útfærsla.

16. gr.

Nafnmerki.

Lögreglustjórar geta ákveðið að lögreglumenn skuli bera nafnmerki í skyrtu og peysu innan­dyra. Ríkislögreglustjóri getur sett samræmdar reglur um nafnmerki og notkun þeirra, bæði innan- og utanhúss.

Beri lögreglumenn eða starfsfólk lögreglu aðgangskort/starfsmannaskilríki viðkomandi lög­reglu­embættis, skulu bönd þeirra vera svört í samræmi við einkennisfatnað lögreglu og eftir atvikum með lögreglustjörnu og skammstöfun embættis, til samræmis við annað starfsfólk.

 

17. gr.

Ásýnd og öryggi.

Einkennisfatnaður lögreglunnar er hluti af ásýnd lögreglunnar gagnvart almenningi. Það leggur þær skyldur á lögreglumenn að hugsa vel um útlit sitt og einkennisfatnaðarins og að lögreglumenn beri hann með reisn. Öllum lögreglumönnum ber að vera snyrtilegir í útliti við lögreglustörf.

Af öryggisástæðum og við störf á vettvangi skal skegg og sítt hár vera tekið upp, sett í tagl, eða þannig fyrir komið að ekki valdi hættu fyrir viðkomandi starfsmann. Af öryggisástæðum skulu neglur á fingrum vera stuttklipptar.

Starfsfólki lögreglu er óheimilt að bera sýnileg merki, þar á meðal húðflúr, sem almennt þykja til þess fallin að ýta undir mismunun eða öfgahyggju. Það skal háð mati lögreglustjóra hverju sinni hvernig leyst er úr ágreiningsmálum sem þetta varða og getur hann leitað álits ríkislögreglustjóra til þess að samræmis sé gætt.

 

18. gr.

Skartgripir.

Af öryggisástæðum skulu hringir vera látlausir. Þeir mega ekki vera útstæðir, með hvössum hornum eða brúnum sem geta skaðað fólk eða fest í fatnaði eða öðru.

Lögreglumenn mega bera látlausa eyrnalokka við lögreglustörf. Af öryggisástæðum má ekki bera opna eða lokaða hringi eða hangandi lokka í eyrum við lögreglustörf.

Af öryggisástæðum mega lögreglumenn ekki bera skartgripi í andliti.

 

V. KAFLI

Fyrirmæli og gildistaka.

19. gr.

Fyrirmæli.

Ríkislögreglustjóri getur sett nánari fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari.

 

20. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 40. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 með síðari breyt­­ingum, öðlast þegar gildi.

Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um einkennisfatnað lögreglunnar nr. 1152/2011.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 12. maí 2021.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica