1. gr.
Gildissvið og markmið.
Reglugerð þessi gildir um störf þeirra starfsmanna lögreglu sem fara með lögregluvald hjá lögregluembættum landsins.
Markmið reglugerðarinnar er að einfalda skipulag lögregluliða, styrkja löggæslu og skilgreina verksvið og ábyrgð innan lögreglunnar.
2. gr.
Starfsstig innan lögreglunnar.
Innan lögreglu eru 9 starfsstig og eru þau eftirfarandi:
Í skipunarbréfi til lögreglumanns í starfsstigi 6 eða 7 skal geta starfsstigs hans.
Um verkefni og ábyrgð, sem hverju starfsstigi fylgja, fer samkvæmt lögreglulögum, reglum þessum og nánari fyrirmælum lögreglustjóra.
Lögreglustjóri skal ákveða hver starfsmanna á hverju starfsstigi skuli vera staðgengill næsta yfirmanns að uppfylltum hæfisskilyrðum.
3. gr.
Ríkislögreglustjóri og aðstoðarríkislögreglustjórar.
Ríkislögreglustjóri fer með málefni lögreglunnar í umboði dómsmálaráðherra. Aðstoðarríkislögreglustjórar eru ríkislögreglustjóra til aðstoðar.
4. gr.
Lögreglustjórar, aðstoðarlögreglustjórar
og skólastjóri Lögregluskóla ríkisins.
Verksvið og ábyrgð lögreglustjóra er eftirfarandi:
Aðstoðarlögreglustjórar við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og lögreglustjórans á Suðurnesjum eru lögreglustjórum til aðstoðar.
Skólastjóri Lögregluskóla ríkisins fer með yfirstjórn skólans. Verksvið hans og ábyrgð skal vera samkvæmt því sem kveðið er á um í lögreglulögum og reglugerð um Lögregluskóla ríkisins, þar með talin uppbygging og framkvæmd grunnmenntunar lögreglumanna og framhaldsmenntunar í skólanum. Að öðru leyti er verksvið hans og ábyrgð hin sama og lögreglustjóra eftir því sem við getur átt.
5. gr.
Yfirlögregluþjónar.
Hjá hverju lögregluembætti skal starfa yfirlögregluþjónn. Í lögregluliðum með fleiri en 80 lögreglumenn, og hjá embætti ríkislögreglustjóra, geta þeir verið fleiri en einn. Verksvið og ábyrgð yfirlögregluþjóns er eftirfarandi:
6. gr.
Aðstoðaryfirlögregluþjónar.
Hjá lögregluliðum með fleiri en 20 lögreglumenn skal starfa aðstoðaryfirlögregluþjónn. Í lögregluliðum með fleiri en 35 lögreglumenn, og hjá embætti ríkislögreglustjóra, geta þeir verið fleiri en einn. Verksvið og ábyrgð aðstoðaryfirlögregluþjóns er eftirfarandi:
7. gr.
Aðalvarðstjórar.
Verksvið og ábyrgð aðalvarðstjóra er í meginatriðum eftirfarandi:
8. gr.
Lögreglufulltrúar.
Verksvið og ábyrgð lögreglufulltrúa er í meginatriðum eftirfarandi:
9. gr.
Rannsóknarlögreglumenn.
Rannsóknarlögreglumenn skulu starfa við þau embætti sem hafa sérstakar rannsóknardeildir. Verksvið og ábyrgð rannsóknarlögreglumanns er í meginatriðum eftirfarandi:
10. gr.
Varðstjórar.
Verksvið og ábyrgð varðstjóra er í meginatriðum eftirfarandi:
11. gr.
Lögreglumenn.
Verksvið og ábyrgð lögreglumanns er eftirfarandi:
12. gr.
Lögreglunemar, héraðslögreglumenn og afleysingamenn í lögreglu.
Lögreglunemar gegna almennum löggæslustörfum í starfsnámi undir stjórn og leiðsögn lögreglumanna.
Héraðslögreglumenn eru ráðnir samkvæmt heimild í lögreglulögum til aukastarfa við löggæslu þegar á þarf að halda, þar á meðal að halda uppi lögum og reglu á mannfundum og skemmtunum undir stjórn lögreglumanna.
Afleysingamenn í lögreglu eru ráðnir samkvæmt heimild í lögreglulögum vegna orlofstöku, veikinda- eða slysaforfalla eða leyfa lögreglumanna.
13. gr.
Nánari fyrirmæli um verksvið og ábyrgð starfsstiga.
Auk stöðueinkenna samkvæmt reglugerð um einkennisbúninga, merki og búnað lögreglunnar bera allir lögreglumenn, sem lokið hafa prófi frá Lögregluskóla ríkisins, aðrir en héraðslögreglumenn, fjögurra stafa lögreglunúmer. Þegar fleiri en einn lögreglumaður með sama starfsstig eru á vettvangi, skal sá fara fyrir þeim sem lægst númer ber nema lögreglustjóri hafi ákveðið annað.
Lögreglustjóri setur nánari fyrirmæli um verksvið og ábyrgð starfsstiga samkvæmt 4. - 10. gr. í samræmi við stærð og hlutverk embættis síns.
14. gr.
Framgangur á milli starfsstiga.
Við ákvörðun um veitingu starfs í hærra starfsstigi skal höfð hliðsjón af hæfni lögreglumanns, starfsaldri, þekkingu, menntun, starfsreynslu og kyni.
Til þess að hljóta skipun í starf yfir- og aðstoðaryfirlögregluþjóns skal umsækjandi hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 5 ár frá því að hann lauk prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Sá sem skipaður er til að gegna þessum störfum skal eiga þess kost að sækja stjórnunarnámskeið við Lögregluskóla ríkisins, eða sambærilegt nám á almennum markaði, hafi hann ekki sótt slíkt námskeið áður.
Til þess að hljóta skipun í starf aðalvarðstjóra, lögreglufulltrúa, rannsóknarlögreglumanns eða varðstjóra skal umsækjandi hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 2 ár frá því hann lauk prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Sá sem skipaður er til að gegn þessum störfum skal sækja námskeið í Lögregluskóla ríkisins, þegar slíkt námskeið er í boði, sem sniðið er að viðkomandi starfi, svo sem námskeið fyrir millistjórnendur í lögreglu og námskeið fyrir rannsóknarlögreglumenn og varðstjóra, hafi viðkomandi ekki sótt slíkt námskeið áður.
Um aðstoðarríkislögreglustjóra og aðstoðarlögreglustjóra, sem ekki uppfylla hæfisskilyrði til skipunar í embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóra, gilda ákvæði 28. gr. lögreglulaga.
15. gr.
Skipurit.
Dómsmálaráðherra ákveður fjölda yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna að fengnum tillögum ríkislögreglustjóra.
Ríkislögreglustjóri ákveður fjölda aðalvarðstjóra og lögreglufulltrúa og varðstjóra og rannsóknarlögreglumanna að fengnum tillögum viðkomandi lögreglustjóra og skólastjóra Lögregluskóla ríkisins hvað skólann varðar.
Dómsmálaráðherra staðfestir skipurit um starfsemi embættis ríkislögreglustjóra.
Lögreglustjórar, þar með talinn skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, skulu senda beiðni um staðfestingu skipurita til ríkislögreglustjóra. Hann skal leggja mat á mannafla- og fjárþörf sem drög að skipuriti hafa í för með sér hjá viðkomandi lögregluembætti.
Ríkislögreglustjóri sendir tillögu að skipuriti lögregluembættis ásamt greinargerð sinni til staðfestingar dómsmálaráðherra.
16. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 28. gr. lögreglulaga, nr. 90 13. júní 1996, sbr. 5. gr. laga nr. 46 13. júní 2006, öðlast gildi 1. janúar 2007. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um starfsstig lögreglunnar nr. 49/2002.
Þeir lögreglumenn, sem fengu skipun í tvö starfsstig samkvæmt 6. og 7. tölul. reglugerðar um starfsstig innan lögreglunnar nr. 49/2002, skulu þó halda því starfsstigi sem þeir gegna við gildistöku þessarar reglugerðar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 15. desember 2006.
Björn Bjarnason.
Halla Bergþóra Björnsdóttir.